Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) vann í áttundu umferð á HM U20 í Mexíkó. Á sama tíma gerði Vignir Vatnar Stefánsson (2484) jafntefli í sinni skák. Báðir höfðu þeir svart.

Aleksandr mætti heimamanninum Santiago Rodriguez Zacharias (2100) með svörtu eins og áður sagði. Aleksandr beitti Jaenisch gambítnum í Spánverjanum, afbrigði sem hann hefur beitt áður. Mexíkóinn brást ekki vel við og eftir leiktöp með hvítreitabiskupnum  (Bf1-b5-c4-e2) má segja að svartur hafi allavega fyllilega jafnað taflið.

Vatnaskil urðu við 24. leik hvíts, 24.Dg3?

Hér má svartur einfaldlega taka á e4. 24…Rxe4 25.Rxe4 Dxf5 mögulega missti hvítur af möguleikum svarts á að skáka á c5 reitnum með drottningunni. Hreinn peðsvinningur nægir yfirleitt á efstu stigum skákarinnar og það nægði hjá Aleksandr til að vinna

Vignir að tafli í Mexíkó Mynd. David Llada

Vignir Vatnar hafði svart gegn Indverjanum Harshavardhan (2397). Vignir reyndi að breyta aðeisn útaf venjunni og tefldi móttekið drottningarbragð til að reyna að hræra aðeins upp í þessu. Indverjinn virtist hinsvegar sáttur við að rugga engum bátum og staðan einfaldaðist full mikið og jafntefli var samið í 30. leik.

Vignir hefur nú 5,5 vinninga af 8 en Aleksandr 5 vinninga. Efstu menn hafa 6,5 vinning en flestar skákir á efstu borðunum enduðu með jafntefli. Hans Niemann vann með svörtu og hefur 6 vinninga og kom sér í aðeins betri stöðu í umferðinni. Ljóst er að góður endasprettur mun skipta öllu!

Í níundu umferð fær Vignir hvítt á heimamanninn og alþjóðlega meistarann Sion Radamantys Galaviz Medina (2462). Ef Vignir ætlar að gera góða atlögu að flottu sæti þá er sigur algjört lykilatriði í þessari skák. Aleksandr fær líka hvítt og mætir kanadíska FIDE meistaranum Jonathan Han (2252).

Um mótið:

Ísland á tvo fulltrúa á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri í Mexíkó. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2484) er númer 19 í styrkleikaröðinni og Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) er númer 36 í styrkleikaröð. Stigahæstur keppenda er hinn umdeildi Hans Moke Niemann (2667) sem hefur verið mikið milli tannanna á fólki undanfarið. Skráðir keppendur eru 149.

Tefldar verða 11 umferðir og er dagskráin eftirfarandi (tímar íslenskir)

  1. umferð 21. september LOKIÐ
  2. umferð 22. september LOKIÐ
  3. umferð 22. september LOKIÐ
  4. umferð 23. september LOKIÐ
  5. umferð 24. september LOKIÐ
  6. umferð 26. september LOKIÐ
  7. umferð 27. september LOKIÐ
  8. umferð 28. september LOKIÐ
  9. umferð 29. september klukkan 22:00
  10. umferð 30. september klukkan 22:00
  11. umferð 1. október klukkan 16:00

Frídagur er í dag mánudaginn 25. september

- Auglýsing -