Í gær fór fram eitt skemmtilegasta hraðskákmót Íslandssögunnar! Mikið var undir þar sem verðlaunafé var gríðarlegt, heildarverðlaunafé á lokamótinu var hvorki meira né minna en ein milljón! Tólf sterkir skákmenn mættu til leiks en þeir unnu sér allir rétt á lokamótinu með því að ná góðum árangri á fimm undanótum sem öll fóru fram á Bankanum Bistro.
Keppendur sem unnu sér réttinn voru eftirfarandi í stigaröð:
1. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2516)
2. GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2508)
3. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2501)
4. GM Helgi Áss Grétarsson (2404)
5. IM Jón Viktor Gunnarsson (2391)
6. IM Björn Þorfinnsson (2390)
7. FM Ingvar Þór Jóhannesson (2348)
8. GM Bragi Þorfinnsson (2322)
9. FM Sigurbjörn Björnsson (2267)
10. FM Örn Leó Jóhannsson (2229)
11. Birkir Ísak Jóhannsson (2187)
Hægt er að sjá skákina með tímanotkun hér á lichess.
Þar með var keppendalistinn full mannaður og við tók keppni allir við alla 11 umferðir! Fjórir efstu unnu sér rétt í undanúrslit þar sem keppt yrðir „best of 3“ þar sem sá hærri í undanmótinu hefur tvo hvíta.
Framundan gríðarleg spenna og mikil barátta! Allt verðugir keppendur og fyrir utan þá allra bestu ljóst að margir myndu gera tilkall til að berjast um að komast í undanúrslitin. Það er oft gott að hafa heilladísirnar á sínu bandi og Arnar gerði það í fyrstu umferð gegn Braga.
Bragi hér manni yfir með hvítt og ætti að hafa unnið tafl eftir t.d. 56.Be2 en lék 56.Kg1? sem var svarað með 56…De1 og nú allt í einu er svartur kominn með færi og skákin orðin jafntefli með bestu taflmennsku. Hvítur fór úr öskunni í eldinn eftir 57.De5?? Df2+ 58.Kh2 Rxf3+
Vignir lagði Helga Áss í fyrstu umferð og lagði strax tóninn með sinni ákveðni og felldi Helga á tíma í jöfnu endatafli. Í annarri umferð kom svo auðveldur sigur gegn Ingvari sem lofaði sjálfum sér í kjölfarið í fimmtugasta og sjötta skiptið að hann væri hættur að tefla Czech Benoni!
24…Rhf6? var slakur leikur en þó í skítastöðu. 25.e5! einfalt og þægilegt. Hvítur vinnur lið þar sem hótunin Bh7+ og svo Rxf7# er ansi leiðinleg!
Vignir vann fyrstu þrjár skákir sínar og aðeins Arnar náði að fylgja honum eftir í byrjun. Eftir að hafa gafflað drottningu af einum Þorfinnssyni þá fylgdi hinn í kjölfarið.
Björn hér með aðeins betra ef eitthvað er eftir 32…Kh8 þar sem hvítur hefur ekki tíma í Rxf6+ útaf Df7 og tveir menn eru ofaní hjá hvítum. 32…Kg8?? var hinsvegar ekki alveg nógu góður og 33.Rxf6+ vinnur húsið.
Hjörvar var fyrstur til að stoppa Vigni í fjórðu umferð.
Vignir hafði teflt fína skák með hvítu og á hér unnið tafl með t.d. 50.Hg8! Kxg8 51.a7 sem vinnur samkvæmt töflureiknum og meðalgreindum mannsheilum. 50.Hd8?? sneri taflinu við. Nú kom 50…f2+ 51.Kf1 h2 og skyndilega góð ráð dýr hjá hvítum og Hjörvar mátaði nokkrum leikjum síðar.
Arnar tapaði líka gegn Hannesi þannig að Ingvar náði að jafna efstu menn, allir með 3 af 4 og svo þéttur pakki með 2,5 vinning. Mikil barátta framundan!
Vignir og Ingvar héldu damp í fimmtu umferð og leiddu með 4 vinninga af 5. Varaborgarfulltrúinn Helgi Áss Grétarsson lætur greinilega endurvinnslumál ofarlega í stefnuskránna. Hann náði að endurnýta b3 reitinn ansi hressilega gegn Hannesi.
Svartur getur ekki valdað hrókinn á c8 en nær í góðan heimanmund með 29…Dxb3! þar sem 30.axb3 yrði svarað með 30…Ha5+ og vinnur drottninguna til baka. Áfram tefldist 30.Hxc8 De3 31.Hc2 Rd4 32.Hc1 Rb3+! sama trikk á b3 reitnum og Hannes varð að lúta í dúk.
Í sjöttu umferð tefldu Arnar og Ingvar. Toppbaráttuslagur þegar þarna var komið við sögu en átti eftir að hafa úrslitaáhrif í lokastöðunni.
Arnar hafði haft unna stöðu eftir illa tefldan broddgölt hjá Ingvari með svart. Arnar var að gefa Ingvari gullið tækifæri með 42.Kc3??
Ingvar sá 42…Dd4+ og eftir 43.Kc2 kom 43…Dd1?? sem sleppir hvítum úr þráskákinni með Kb2, Arnar lék 44.Kc3?? en hikaði við að leika þangað. Ingvar fattaði þá að Arnar hafði verið að spá í 44.Kb2 og féll Ingvar meðan hann lék 44…Dd4+ og var að átta sig á að 45.Kc2 Da1! hefði verið málið og svartur virðist ná þráskák…en því miður of seint! Heilt yfir þó sanngjörn úrslit í skákinni.

Her voru eiginlega smá vatnaskil um miðbik mótsins. Vignir, Helgi og Hjörvar héldu áfram að vinna skákir og ljóst var orðið að þeir þrír væru á leið í úrsitin. Aðrir voru í að reita vinninga hver af öðrum og ljóst að spennan yrði fram á lokaumferð. Baráttan um fjórða sætið virtist ætla að standa á milli Arnars, Ingvars og Braga.
Það var vatn á myllu Braga í áttundu umferð þegar hann lagði Ingvar að velli
Ingvar hafði varist sóknartilburðum Björns bróður hans í Deildakeppninni ekki alls fyrir löngu og Bragi vildi ekki vera minni sóknarskákmaður en Björn og hafði hér fórnað peðum fyrir færi. Ingvar hefði líklega varist með 25…Hg6! og þá átt dauðafæri að ná mjög mikilvægum sigri. Knappur tími varð til þess að eini leikurinn sem fannst var 25…De7?? sem er glataður reitur þar sem drottningin er óvölduð og f-peðið því leppur. 26.Bd3 og Bragi hafði snúið taflinu sér í hag og náði í mikilvægan sigur í þessari umferð og eins í næstu umferð þegar hann náði í risavaxinn sigur gegn Hjörvari.
Ingvar hélt líka dampi og lagði Björn Þorfinnsson en allir þeir sem áttu sénsinn misstígu sig í næstsíðustu umferðinni. Ingvar nagar sig væntalega í handarbökin að hafa hafnað þráleik gegn Erni Leó og þess í stað tapað. Bragi náði ekki nægjanlega vel útfærðri skák gegn Sigurbirni þannig að Arnar fór inn í lokaumferðia í 4. sætinu mikilvæga.
Ingvar og Bragi urðu að vinna sínar skákir og treysta á að Helgi Áss myndi hjálpa þeim með því að leggja Arnar að velli. Bragi tapaði gegn Birki Ísak en Ingvar hélt sínum vonum á lífi með sigri á Hannesi. Byrjunin misheppnaðist hjá Hannesi.
Ingvar klúðraði reyndar hér með 10.Rc7+Kd8 11.Rxe4 þar sem svartur á 11…De5 sem bjargar málunum. 10.Rxe4 hefði gefið kolunnið tafl. Eftir 11…f6? 12.Rxa8 er hvítur hreinum manni yfir.
Arnar reyndist vandanum vaxinn og náði að klára dæmi í vænlegu riddaraendtafli þegar Helgi féll á tíma. Helgi endaði mótið illa en fór líka áfram ásamt Arnari, Vigni og Hjörvari.

Lokastaðan er líka á chess.com en þar er vitlaust skráð skák Björns Þorfinnssonar og Arnar Leó sem Örn Leó vann.

Skákir undanmótsins:
Undanúrslit

Þriggja skáka einvígi voru á dagskrá í undanúrslitum, sá sem var hærri í undanmótinu hafði tvo hvíta.
Vignir mætti Helga Áss í fyrra einvíginu. Helgi var með Vigni í stórkostlegum vandræðum í fyrstu skákinni.
Helgi lék 29…Bc8? sem missir af 29…Rg2+ 30.K-eitthvað Rxe3 og riddarinn á g3 er óvaldaður. Dýr mistök hjá Helga. Vignir varðist og komst í endatafl þar sem f-peðið hans reyndist banabiti svarts.
Helgi virtist aftur á góðri leið með að ná í sigur í skák númer tvö. Hann hefði betra tafl lengst af en féll á tíma nokkuð snemma í miðtaflinu, einbeitingarskortur og Vignir kominn í úrslitin með 2-0 sigri.

Seinna undaneinvígið var á milli Hjörvars og Arnars. Hjörvar endaði ofar og byrjaði með hvítt og fengi tvo hvíta ef einvígið færi í þrjár skákir.
Hjörvar tefldi fyrstu skákina gríðarlega vel í enska leiknum með hvítu. Bjó Hjörvar að því að hafa fengið sama afbrigði fyrr á mótinu.
25.d6! var fín stunga og hvítur fær unnið. 25…cxd6 er svarað með 26.Rd5 og svo slegið á f5 og riddari e7 skák.
Allar vonir Arnars um að ná úrslitaskák fóru út í hafsauga í seinni skákinni eftir 16.e3?? Hjörvar svaraði að bragði 16…Rxc3 og skákin á e2 vinnur lið.
Hjörvar því kominn í úrslit, vann 2-0. Arnar fór í dýrasta bronseinvígi skáksögunnar á Íslandi!
Bronsið
Bronsverðlaun á þessu lokamóti og þar með mótaröðinni voru 200.000 krónur. Fjórða sætið fékk sjampóbrúsa…alvöru brekka þarna!
Arnar fékk hvítt þar sem hann endaði ofar á oddastigum í undanmótinu. Helgi nýtti svörtu mennina vel, tók algjörlega yfir á svörtu reitunum og tætti hvítu kóngsstöðuna í sig.

Seinni skákin var svo algjörlega í eign Helga frá byrjun til enda. Arnar féll á tíma með gjörtapað tafl. 2-0 fyrir Helga.
Öruggur sigur hjá Helga sem náði þarmeð bronsinu og 200 þúsund krónum. Arnar lenti í 4. sætinu sem flestir vildu forðast, nálægt verðlaunum en situr eftir með sárt ennið….og sjampóbrúsann!
Úrslitaviðureignin
Það hefði nú líklegast ekki þurft Nostradamus til að spá fyrir um þessi úrslit. Vignir og Hjörvar hafa verið bestu hraðskákmenn landsins undanfarin misseri og þeir mættust í úrslitum.

Vignir varð ofar á mótinu og fékk hvítu mennina. Vignir byrjaði feykivel með hvítu og Hjörvar lenti í vandræðum í byrjuninni og náði ekki að vinna sig úr þeim. Vignir steig á bensíngjöfina og Hjörvar varð að leggja niður vopn í 26. leik.
Hjörvar þurfti nú nauðsynlega sigur. Hann hafði hvítt og upp kom eitt af uppáhaldsafbrigðum Vignis, …Bd6 línan. Aldrei þessi vant virtist línan ekki ætla að gefa. Hjörvar tefldi vel og vann peð og stóð til vinnings. Vignir sýndi þá einn af sínum styrkleikum og hélt áfram að berjast af krafti. Hjörvar missti svo þráðinn og Vignir fékk unnið.
Þar með var sagan engan veginn öll sögð. Nú var það Hjörvar sem þurfti að sprikla. Hann leyfði Vigni að vekja upp drottningu og vonaðist eftir að mótspilið nægði. Það virtist nægja í þráskák en í bullandi tímahraki fékk Hjörvar sénsinn.
Í hraki lék Hjörvar 54.e4 en 54.Dc2 mátar í fjórum leikjum! T.d. 54…Kg4 55.f3+ Kxf3 56.Df2+ og mát í næsta leik! Hjörvar missti af þessu og kóngur svarts slapp! 2-0 fyrir Vigni.
- Úrslitin á lichess
Þar með var ljóst að Vignir Vatnar vann sigur á þessu móti og þessari glæsilegu mótaröð Bankans Bistro lokið!

Vignir ásamt CAD bræðrum og Óla Val.

Verðlaunahafar ásamt mótshöldurum.
- Vignir 500.000
- Hjörvar 300.000
- Helgi Áss 200.000
Alvöru verðlaun og alvöru skákmenn mættir til leiks! Það verður að þakka Óla Val og Bankanum Bistro fyrir frábæra mótaröð og verðlaun og þetta er mót sem hefur lyft hraðskákmenningunni upp á allt annað stig! Teflt var við fínar aðstæður og veitingar í boði fyrir keppendur meðan á móti stóð og eftir!
CAD-bræður verða að fá stórt hrós, þeir hafa gert mikið fyrir mótastandarinn hér á Íslandi. Það eru alvöru verðlaun og umgjörð og menn nenna að mæta á þessi mót! Þeir hugsa líka út fyrir boxið og gaman var að fá Hörð Magnússon í lýsingu með þeim, alvöru fagmaður!
Skákskýringar fóru fram á Twitch síðu Chess After Dark og hægt að nálgast útsendingu gærdagsins í heild sinni hér.
Skákstjórn var í öruggum höndum Róberts Lagerman.
- Mótið á Chess Results: Chess-Results Server Chess-results.com – BANKINN-BISTRÓ GREAT FINALE
- Lokaúrslit Vignir – Hjörvar á chess-results
- Undanúrslit Helgi – Vignir á chess-results
- Undanúrslit Hjörvar – Arnar á chess-results
- Brons Arnar – Helgi á chess-results
- Twitch: chessafterdark – Twitch
- Linkur á mótið á Chess.com: Bank Bistro Final- Chess.com

















