Þeir félagar Birkir Hallmundarson og Josef Omarsson eru að standa sig vel á HM í sínum aldursflokkum í Egyptalandi. Nú er aðeins ein umferð eftir en Josef Omarsson teflir í U12 flokknum og Birkir Hallmundarson í U10.
Birkir vann sigur í tíundu umferðinni Raphael Wilhelm Menke (1778) frá Þýskalandi. Skákin var sveiflukennd og spennandi en Birkir hafði á endanum betur í flækjunum. Skákin var sýnd beint og hægt að skoða hér að neðan:
Í flokki Birkis eru 115 keppendur og er Birkir númer 34 í stigaröðinni. Birkir hefur 7 vinninga af 10 og er í 7-14. sæti. Í lokaumferðinni mætir hann grjóthörðum Tyrkja sem er CM og með 2146 elóstig. Sá heitir Sarp Sahin. Nái Birkir úrslitum gæti hann náð mjög flottu sæti á mótinu!
Josef vann í tíundum umferð í U12 gegn Suður-Kóreubúanum Kim Mingeon (1296). Josef hefur nú fengið 4 vinninga úr síðustu 5 umferðum og er með 5,5 vinning af 10. 92 keppendur er í flokki Josefs sem var númer 46 í styrkleikaröðinni en er nú í 43. sæti. Josef mætir ungum Úzbeka, Javokhir Bozorov (2030) í lokaumferðinni.
Lokaumferðin fer fram á morgun, Birkir verður í beinni útsendingu.
- Flokkur Jósefs á Chess-Results U12
- Flokkur Birkis á Chess-results U10
- Beinar útsendingar U10 á lichess
















