Skákmeistarinn Sigurður G. Daníelsson er látinn. Siggi Dan eins og hann var iðulega kallaður í skákheimum var 79 ára þegar hann lést. Hann tefldi síðustu ár með Skákfélaginu Goðanum.
Siggi var þekktur fyrir skemmtilegan skákstíl. Fórnarskákmaður. Hann tefldi meðal annars í landsliðsflokki árið 1982 eftir góðan árangur í áskorendaflokki árið áður.
Sá sem þetta ritar minnist Sigga með hlýhug. Skemmtilegur karl sem var ávallt gaman að hitta og spjalla við.
Aðstandendum votta ég samúð mína.
- Auglýsing -
















