Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2529) situr nú að tafli á HM öldunga 50+ sem fram fer á Terrasini á Ítalíu. Fjöldi stórmeistara eru mættir til leiks og þeirra fremstur í flokki er Michael Adams (2670). Hannes er númer 2 í stigaröðinni þó fjöldi sterkra gamalla meistara séu mættir til leiks.
Hannes byrjaði illa í 1. umferð og lék skelfilega af sér snemma tafls í mjög vænlegri stöðu gegn Petr Folk (2109).
Hannes hefur síðan rétt úr kútnum. Í 2. umferð lagði hann Grikkjann Loukas Papadimitrou (1987) með svörtu og í 3. umferðinni í dag sem var að klárast vann hann sigur gegn FIDE meistaranum Michael Steadman (2114) frá Nýja Sjálandi.
- Mótið á chess-results
- Beinar útsendingar á lichess
- Beint á Chess24
- Auglýsing -

















