Fimm ára planið kom við sögu á Útvarpi sögu í gær.

Kristján Örn Elíasson hefur um nokkra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.

Í gær mætti Helgi Áss Grétarsson í settið í Skipholtinu. Í kynningu um þáttinn segir:

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar að þessu sinni.  Margt hefur drifið á daga íslenskra skákmanna að undanförnu og margt spennandi er á dagskrá næstu vikurnar sem þeir Helgi og Kristján Örn fóru yfir í þættinum.

Má þar nefna að í gær hefði Hrafn Jökulsson rithöfundur, blaðamaður og skákfrömuður orðið 58 ára gamall en hann lést á síðasta ári. i.

Helgi sagði frá athyglisverðri og stórskemmtilegri grein sem hann skrifaði í síðasta tölublað Tímaritsins Skák sem hann kallar „5 ára planið“ með undirfyrirsögninni „Reynslusaga miðaldra stórmeistara af endurkomu í skákheiminn“. Í lok greinarinnar segir hann að aðalatriðið sé að vinna í að bæta ákvarðanir sínar og finna leiðir til að skapa erfiðleika fyrir andstæðinginn, að taka skynsamlegar ákvarðanir. Á þann hátt sé líklegast að maður hámarki árangur sinn á hverjum tíma.

Þáttinn má nálgast á Spotify.

 

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -