EM landsliða fer fram í Budva í Svartfjalllandi 11-20. nóvember. Ísland sendir lið í opnum flokki og kvennaflokki. Fram að móti verða liðsmenn kynntir til leiks hver á fætur og öðrum Í dag kynnum við til leiks Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur sem teflir á þriðja borði í kvennaflokki.
EM-fararnir
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Vignir Vatnar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Hilmir Freyr Heimsson
- Olga Prudnykova
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
- Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Nafn?
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Borð?
3. borð.
Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul?
Pabbi og langaafi kenndu mér þegar ég var 4 ára
Uppáhaldsskákmaður?
Tal og Carlsen hafa lengi verið í uppáhaldi en undanfarið hefur verið frábært að fylgjast með Eline Roebers enda skákstíllinn mjög skemmtilegur.
Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir EM landsliða?
Hef lagt áherslur á byrjanir. Hef lagt upp með að tefla eins mikið og ég get til að fá betri reynslu í miðtöflunum og bæta skilning. Fór meðal annars á EM taflfélaga þar sem þær skiluðu góðum árangri.
Hluti af hvaða landi var Svartfjallaland áður en það hét bara Svartfjallaland? (bannað að nota Google!).
Serbía og Svartfjallaland hét það
Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?
Þetta verður þriðja ferðin á EM landsliða
Hvaða lönd eiga landamæri að Svartfjallandlandi (Google bannað!!) – Vísbending: Landið á landamæri að fimm löndum.
Króatía, Serbía, Búlgaría, Albanía og Bosnía og Hersegóvina
Hver verður fyrsti áskorandi Ding Liren?
Væri gaman að sjá einhvern af nýju kynslóðinni komast alla leið eins og ungu Indverjarnir Gukesh eða Pragg
Hvað heitir núverandi heimsmeistari kvenna (Google bannað!)
Ju Wenjun.
Hver er þín skrautlegasta sigurskák?
Þegar stórt er spurt! Mjög erfitt að velja enda eru þær margar í skrautlegri kantinum. Allar skákir á móti Gauta Pál koma í huga t.d. þegar ég náði að halda jafntefli með tvö peð fyrir hrók (skil það ennþá ekki) en skákin á móti Buse Naz Kocyigit frá Tyrklandi var mjög skrautleg og tryggði liðinu sigur á liði Tyrklands á EM 2019 í Slóveníu.
Hver eru þín markmið á mótinu?
Ná góðum stöðum út úr byrjunum og reyna að tefla meira solid skákir
Áfram?
með smjörið!

















