Svo virðist sem Magnus Carlsen (2818) sé ennþá „bestur í spilinu“ eins og gárungarnir kalla það. Magnus kláraði í dag sinn fimmta heimsmeistaratitil í atskák þegar hann varð einn efstur á heimsmeistaramótinu í atskák í Samarkand í Úzbekistan. Magnus hlaut 10 vinninga í skákunum 13 og tapaði ekki einni einustu skák.
Samantekt á degi 2:
Carlsen byrjaði daginn á að mæta Vladimir Fedoseev (2716) sem var ásamt Magnus og Yu Yangyi í efsta sæti fyrir umferðina. Hér vann Magnus gríðarlega mikilvægan sigur með svörtu mönnunum. Upp kom Nimzo-indversk vörn og Magnus sýndi æðri strategískan skilning í lokaðri stöðu og gjörsamlega yfirspilaði rússneska-slóvenann.
Skákin á myndbandsformi
Magnus náði þarna í hálfan vinning í forskot þar sem Yu Yangyi gerði jafntefli í sinni skák. Fimm skákmenn voru nú hálfum vinningi á eftir Carlsen en Carlsen hafði teflt við þrjá þeirra. Hann fékk því í raun nokkuð þægilega pörun í 11. umferð þegar hann mætti Írananum Idany Pouya (2516). Með fullri virðingu fyrir Írananum verður þetta að teljast nokkuð þægileg pörun fyrir Norðmanninn. Nepo, Caruana, Aronian og fleiri áttu ekki nægjanlega gott mót til að ógna Carlsen og náðu ekki einu sinni að tefla við hann.
Styrkleikamunurinn var einfaldlega of mikill. Þó að Magnus hafi ekki fengið mikið í miðtaflinu náði hann að véla sig í unnið endatafl og gerði engin mistök þegar þangað var komið!
Eini skákmaðurinn sem náði að hanga í Carlsen var Vidit sem var hálfum vinningi á eftir en þar sem Magnus hafði lagt Vidit að velli var staðan hjá Norðmanninum orðin ansi vænleg!
Í 12. og næstsíðustu umferð gerði Carlsen tiltölulega stutt jafntefli með svörtu við Abdusattorov. Þar sem Vidit tapaði var Magnus enn með hálfan vinning í forskot og nú á Vladimir Fedoseev….sem hann hafði nú þegar lagt að velli. Magnus því í góðri stöðu fyrir lokaumferðina og þar sem menn voru mikið í því að gera jafntefli í kringum hann á efstu borðum var forystan nokkuð örugg.
Í lokaumferðinni hafði Magnus hvítt á Pragga. Þegar Magnus sá að Fedoseev gerði stutt jafntefli við „fyrrverandi“ samlanda sinn Andreikin var sigurinn eiginlega í höfn. Magnus stýrði taflinu í örugga jafnteflishöfn og sigurinn var hans, enn og aftur!

Frábær árangur hjá Carlsen sem sýnir enn og aftur hver er kóngurinn í skákinni!
Viðtal við heimsmeistarann:
Viðtal við Henrik, föður Carlsen
Samantekt Hikaru:
Kvennaflokkur
Í kvennaflokki urðu Anastasia Bodnaruk, Koneru Humpy og Lei Tingje efstar með 8,5 vinning úr umferðunum 11. Eftir bráðabana var það sú úkraínska, Bodnaruk sem náði í titilinn!
The final game of the FIDE Women’s World Rapid Championship couldn’t be more dramatic!
Humpy Koneru blundered in a winning position and eventually lost on time after a couple of moves. Watch Anastasia Bodnaruk’s reactions the moment she became the 2023 FIDE Women’s World Rapid… pic.twitter.com/wCVPXXT6KF
— International Chess Federation (@FIDE_chess) December 28, 2023
Bodnaruk var ánægð með sigurinn, hún viðurkenndi að Humpy hefði teflt betur en hún hefði einfaldlega teflt hraðar og það skilaði árangrinum!
Á morgun er svo komið að hraðskákinni sem svo margir hafa beðið spenntir eftir. Ellefu umferðir verða tefldar á morgun og svo tíu á laugardaginn.
- Beinar útsendingar á lichess (atskák) | Kvennaflokkur
- Beinar útsendignar á lichess (hraðskák) | Kvennaflokkur
- Kvennaflokkur
- Beinar útsendingar á chess.com (atskák)
- Chess-Results atskákin | Kvennaflokkur
- Chess-Results hraðskákin| Kvennaflokkur
- Saga Heimsmeistaramótsins í atskák
- Saga Heimsmeistaramótsins í hraðskák
















