Vikan í skák 15-21. janúar er hér tekin fyrir! Skákvikan er nýr liður á Skak.is þar sem farið er yfir nýliðna viku í skákinni, fréttir og úrslit af innlendum sem erlendum vettvangi tekin fyrir…allt á léttu nótunum!

Jóhann H. Ragnarsson að tafli á Reykjavíkurskákmótinu.
  • Heimamaðurinn Jóhann Ragnarsson varð hlutskarpastur á Skákkvöldi T.G. mánudagskvöldið 15. janúar. Jóhann hlaut fullt hús, 6 vinninga af 6 mögulegum.

 

Kramnik og Nepo. Mynd: Alina l’Ami/Tata Steel Chess
  • Vladimir Kramnik stimplaði sig inn á YouTube í fyrsta skipti og skýrði skákir sínar „lifandi“ á Titled Tuesday. Spurning hvort þetta verði vikulegur liður hjá honum að saka menn um svindl í beinn? Var þetta kannski „endataflið“ hjá honum allan tímann? Að vera með fáranlegar ásakanir til að vekja athygli á sínu eigin streymi?

  • Sumar ásakanir Kramnik eru algjörlega sturlað fáranlegar eins og Aman Hambleton tekur hér fyrir og gerir grín að í Chessbrah vídeói

  • Annar „gamall hundur“ er Gata Kamsky. Gata hefur einnig verið iðinn við kolann með að saka alla sem vinna hann í netskák um svindl og hefur tekið vel undir með Kramnik. Báðir eru þeir ekki á „pre-move“ vagninum að því er virðist!

  • TR-ingarnir Torfi Leósson og Gauti Páll Jónsson urðu hlutskarpastir á þriðjudagsmóti TR með 4,5 vinning af 5, gerðu innbyrðis jafntefli en unnu aðrar skákir.

  • 8 ára krakkar virðast vera að yfirtaka skákheiminn! Leonid Ivanovic varð í vikunni mjög líklega yngsti skákmaður sögunnar til að leggja stórmeistara að velli í kappskák. Hin 8 ára Bodhana Sivanandan er svo væntanleg á Reykjavíkurskákmótið en það var staðfest í vikunni. Hún hefur vakið mikla athygli fyrir frábær úrslit á at- og hraðskákmótum gegn fjölmörgum sterkum skákkonum. Lengjan telur stuðulinn á að hún mæti Birni Þorfinnssyni á mótinu ca. 1.10.

  • MVL Tók Titled Tuesday.

  • Nepo mætti í nýtt Podcast og var almennt fúll á móti, fúll út í mótin hans Ding í Kína, fúll út í mótið hans Firouzja í Frakklandi og fúll út í mótið hans Gukesh á Indlandi. Hann vill rannsókn á kínverskum mótum. Hress gaur!

 

  • Anish Giri virðist hafa byrjað á því að stela peðum í Sjávarvíkinni! Þetta virðist vera orðið almennt vandamál en greinarhöfundur rakst óvænt á hvítt peð á klósettinu á EM landsliða í Svartfjallalandi!

Magnús Pálmi Örnólfsson í Hörpu.
  • Magnús Pálmi Örnólfsson kíkti í stórskemmtilegt spjall til Kristjáns Arnar „Við Skákborðið“. Magnús grunar konu sína um að hafa lagt helstu skákmeistara heimsins á minnið til að „veiða hann“ og jafnframt mælir hann með jafnteflisboðum í ýmsum hversdagsverkum, svosem hvernig raða skal í uppþvottavélar!

  • Fimmtudagurinn 18. janúar var sögulegur í Sjávarvíkinni. Þær Ju Wenjun og Eline Roebers náðu sögulega góðum úrslitum. Wenjun lagði Alireza Firouzja að velli, einn stigahæsti skákmaður sögunnar sem kvennmaður hefur lagt að velli…sérstaklega ef Judit Polgar er alfarið tekin út fyrir það mengi. Roebers lagði svo Hans Niemann að velli í Challengers grúppunni.

 

  • Chess.com tilkynnti í vikunni að PRO Chess League, deildin sem hefur verið í gangi af og á síðan 2005 hafi verið lögð niður. Stefnt var á að halda undanrásir í byrjun febrúar og undirbúningur var í gangi að ná endurkomu Reykjavik Puffins en ljóst er að bið verður á því. Mögulega eru þetta þó endalok Puffins…en það voru góðir tímar inn á milli!

  • Þó það séu „gamlar fréttir“ voru Reddit notendur að rifja upp mjög fyndna skopstælingu „It’s Always Sunny in Philadelphia“ þáttana á „rassasvindlinu! Gott atriði!

  • FIDE meistarinn Brandon Burrows náði sínum fyrsta IM áfanga á móti í Vegas í vikunni.  Hann vann eina skák og gerði níu jafntefli. Þessi jafntefli voru að meðaltali 10 leikir s.s. ótefldar skákir. FIDE veifuðu vendi og hafa ekki samþykkt þetta norm, athyglisverð vending!

 

  • Keppendur á Norway Chess voru kynntir í vikunni. Að þessu sinni eru 6 keppendur allir við alla og auk þess verður kvennaflokkur! Þetta eru stórar fréttir fyrir kvennaskák og almennt séð má segja að þessi vika hafi verið góð fyrir kvennaskákina!

  • Skákþing Reykjavíkur er nú ca. hálfnað. Baráttan verður hörð í seinni hlutanum en Gauti Páll Jónsson er öruggur með að vera allavega í skiptu efsta sæti að loknum 5 umferðum.
- Auglýsing -