Gauti Páll Jónsson er efstur á Skákþingi Reykjavíkur ásamt Degi Ragnarssyni. Gauti Páll þurfti að taka hálfs vinnings hjásetu í umferðinni og Dagur nýtti tækifærið og lagði Jóhann Ingvason að velli og náði Gauta að vinningum.

Jóhann gegn Degi

Dagur náði undirtökunum í miðtaflinu og náði að sækja fram á kóngsvæng á meðan Jóhann með hvítt var eiginlega mótspilslaus.

Hilmir Freyr fékk frían vinning á öðru borði þar sem David Kolka forfallaðist og Hilmir er því hálfum vinningi frá efstu mönnum.

Bárður Örn og Kristján Örn

Bárður Örn er líka hálfum vinningi frá efstu mönnum. Hann lagði Kristján Örn í 5. umferðinni. Kristján byrjaði með einhvern derring á kóngsvæng en Bárður kæfði það fljótlega og skildi Kristján eftir í þröngri stöðu og í vörn.  Kristján er of ansi siegur að halda sér fast en Bárður er líka klókur í svona stöðum og hann fann leið i gegn.

Sverrir og Björn

Björn Hólm náði ekki að brjóta niður varnir Sverris Sigurðssonar og þeir skildu jafnir.

Josef og Lenka

Fjölskyldubarátta var hjá Josef gegn Lenku. Benkö-biskupinn á g7 var sterkur og Lenka fann vinningsleik hér:

19…Rf3+ og hvítur tapar liði.

Helstu úrslit 5. umferðar

Dagur og Gauti efstir með 4,5 vinning og ættu að mætast í næstu umferð. Innbyrðis viðureign hinna fjögurra fræknu með 4 vinninga verða svo vafalítið spennandi!

Sjötta umferðin fer fram næstkomandi miðvikudag.

Fleiri myndir frá umferðinni (myndir: Una Strand Viðarsdóttir)

- Auglýsing -