Allireza Firouzja blandaði sér í hóp þriggja efstu á Tate Steel mótinu Sjávarvík. Þeir Anish Giri og Gukesh gerðu jafntefli í sínum skákum en Abdusattorov tapaði og er hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.
Heilt yfir var umferiðn með rólegra móti og óvenju mikið um jafntefli en Alireza sá um flugeldana að þessu sinni. Íraninn ungi sem teflir fyrir Frakka hafði hvítt og lét til skarar skríða í miðtaflinu.
17.Hxe7! gott en ekki endilega endalokin fyrir svartan 17…Rxe7 18.Hxd4 Dc7? slakur leikur hjá Heimsmeistaranum sem hefur vægast sagt ollið vonbrigðum á þessu móti.
19.Re4! og sá kínverski var kominn í stórkostleg vandræði.
Ding Liren resigns against Alireza Firouzja! The world champion has now lost in #TataSteelChess against 2 of the players he could face in a title match later this year pic.twitter.com/QtmJFjlIpG
— chess24.com (@chess24com) January 21, 2024
Daniel King skýrir betur gang mála í þessari skák á YouTube:
Hin sigurskákin í annars rólegri umferð hafði nokkur áhrif á toppbaráttuna. Ian Nepomniachtchi lagði þá Nodirbek Abdusattorov að velli en hann var ásamt öðrum i toppsæti fyrir umferðina.
Nepo fórnaði peði en stórskemmdi peðastöðu Úzbekans unga. Þegar Nepo vann svo peðið til baka stóð hann eftir með vænlegt og líklegast unnið endatafl.
Pragganandhaa er hálfum vinningi á eftir efstu mönnum og er á ansi góðum skrið í kappskák. Hefur ekki tapað í 41 skák!
Praggnanandhaa was under pressure against Warmerdam, but he makes it 41 classical games unbeaten! #TataSteelChess pic.twitter.com/Jqiz1T45AS
— chess24.com (@chess24com) January 21, 2024
Staðan:
Firouzja joins Giri and Gukesh in the lead, as Abdusattorov loses an important game to Nepomniachtchi. Five more rounds to go at #TataSteelChess. pic.twitter.com/zCJR4xb8h6
— Chessify (@ChessifyMe) January 21, 2024
Giri, Gukesh og Firouzja hafa nú 5 vinninga af 8. Pakkinn er þéttur þar fyrir aftan, sterkir skákmenn með 4,5 vinning.
Í áskorendaflokki lagði Heimsmeistari unglinga, Marc’Andria Maurizzi forystusauðinn Salem A.R. Saleh að velli og hrifsaði þarmeð af honum foryystuna.
16-year-old World Junior Champion Marc'Andria Maurizzi beats previous leader Salem Saleh to take the sole lead in the #TataSteelChess Challengers! https://t.co/V9bTSdxN7L #c24live pic.twitter.com/fCdOC3aQIY
— chess24.com (@chess24com) January 21, 2024
Á morgun er frídagur og níunda umferðin verður tefld á þriðjudaginn.
















