Íslandsmót öldunga (65+) hófst í kvöld samfara Íslandsmóti kvenna. Teflt er í Siglingaklúbbnum Ými í Kópavogi, mótsstaður sem hefur reynst Skáksambandinu vel!
Sex skákmenn eru skráðir til leiks á þessu Íslandsmóti þar sem tefldar verða fimm umferðir, allir við alla.

Bragi Halldórsson fór vel af stað á þessu móti. Caro-kann skákmenn hafa oft vaðið fyrir neðan sig og var Bragi fyrstu að mæta á mótsstað til að taka út skákstaðinn. Hann var líka fyrstur að klára í kvöld þegar hann lagði Kristján Örn Elíasson að velli.
Kristján opnaði með kóngspeði og að sjálfsögðu svaraði Bragi með Caro-kann! Byrjunin misheppnaðist eitthvað hjá Kristjáni og Bragi náði menntuðu plani þar sem peð svarts tóku algjörlega yfir miðborðið og Bragi fékk mikið rými til að vinna úr. Hann nýtti það til að ná sér í afgerandi kóngssókn á drottningarvængnum.

Ríkjandi Íslandsmeistari öldunga Bjögvin Víglundsson náði að vinna með svörtu gegn apabyrjun (Orangutan) Páls G. Jónssonar, 1.b4, sem hann er þekktur fyrir!
Lykilstaðan kom snemma í miðtaflinu eftir 19.Kh1? hjá Páli
Björgvin sá sér leik á borði og lék 19…Rxe3!? sem nægði til peðsvinnings. 19…d4! hefði hinsvegar verið enn sterkari leikur! Peðsvinningurinn nægði Björgvin í þetta skiptið! Hurð skall þó nærri hælum í úrvinnslunni!
Hér hefði 35...Dd2! 36.De1 Dxd4 klárað dæmið þar sem 37.Kxe2 De4+ leiðir til peðsendatafls sem er kolunnið á svart. Þess í stað bombaði Ögmundur yfir með 35...h6?? sem er svosem skiljanlegt þar sem Ögmundur spilaði lengst af í marki í fótboltanum. Það var hinsvegar Þór sem tók að sér markvörsluna og náði að sprikla nægjanlega mikið til að ná jafntefli!

Öldungarnir halda áfram á morgun klukkan 18:00 þegar 2.umferð fer fram. Hlé verður á flokknum á fimmtudag og föstudag þegar Íslandsmót 50+ fer fram í Faxafeninu!
Una Strand Viðarsdóttir fær þakkir fyrir myndatöku í umferð kvöldsins!
- Mótið á chess-results
- Skákir á lichess
















