Fjölnir tryggði sér Íslandmeistaratitilinn í fyrri umferð dagsins með glæsibrag. Þeir virðast ekkert ætla að stíga af bensíngjöfinni og unnu sinn níunda sigur í röð í seinni umferð dagsins. Gárungar velta fyrir sér hvort þetta sé fyrsti Íslandsmeistaratitill Fjölnis í efstu deild í íþróttum?

Íslandsmóti Skákfélaga 2023/24 lýkur á morgun með lokaumferð í öllum deildum. Auk Fjölnis í úrvaldsdeild hefur Dímon tryggt sér sigur í 4. deildinni. Í öðrum deildum ráðast úrslit í lokaumferðinni!

KVIKUDEILDIN

Fjölnismenn stigu ekkert af bensíngjöfinni þrátt fyrir að hafa þegar tryggt sér titilinn. Þeir töpuðu reyndar á efsta borði þar sem Hannes Hlífar sýndi gamalkunna takta og yfirspilaði Pultinevicius skemmtilega.

Hinir Litháarnir og Kaido unnu allir þannig að seiglusigur Lenku á neðsta borði gerði það að verkum að Fjölnir vann með minnsta mun.

Taflfélag Reykjavíkur er í baráttu við Víkingaklúbbinn um silfrið. KR-ingar voru ekkert á því að gera þá baráttu auðvelda fyrir TR-inga. Gleðitíðindin fyrir TR og íslenskt skáklíf var að sjálfsögðu að Aleksandr Domalchuk-Jonasson náði sér í hvorki meira né minna en stórmeistaraáfanga!

Það reyndist ansi dýrkeypt fyrir TR-inga þegar Sulypa gleymdi sér og féll á tíma með unnið tafl á 4. borði. Þar með sveiflaðist viðureignin yfir í sigur með minnsta mun hjá KR! Vignir sýndi líka seiglu og sneri á Helga Áss í síðustu skákinni til að klárast.

Víkingaklúbburinn fékk því dauðafæri á að komast yfir TR-inga fyrir lokaumferðina…allt stefndi í það þar til Páll Þórarinsson lék unnu tafli í tap.

52…Hg4?? þýddi eftir 53.Hxd7 að TR nægir nú jafntefli eða betra í lokaumferðinni gegn Víkingum til að ná silfrinu. Víkingaklúbburinn þarf sigur.

Fjölnismenn eins og áður sagði búnir að tryggja sig, ná þeir að hreinsa? Vestmannaeyjar virðast ætla að detta aftur niður í 1. deild. Til að koma í veg fyrir það þurfa þeir að verða fyrstir til að ná í jafntefli eða meira gegn Fjölni! TR og Víkingaklúbburinn mætast í úrslitaleik um 2. sætið

 

1. DEILD

Breiðablik og Skákfélag Akureyrar mætast í úrslitaleik í lokaumferðinni. Breiðablik nægir jafntefli. Vinaskákfélagið er fallið og spurning hverjir fylgja þeim niður.

1. deildin á Chess-Results

2. DEILD

Þrjár sveitir berjast um keppnisrétt í 2. deild að ári. TG-c eru fallnir en enn barátta um hverjir fylgja þeim niður.

2.deild á chess-results

3. DEILD

Hörð barátta um sæti í 2. deild að ári og æsispennandi lokaumferð framundan! TR-e falla en spurning hverjir fara með þeim niður.

3.deild á chess-results

4. DEILD

Dímon er með fullt hús á toppnum. Akureyri-c og KR-d eru líklegust til að fylgja þeim upp.

4. deildin á chess-results

Lokamferðin í öllum deildum fer fram á morgun klukkan 11:00.

- Auglýsing -