Skólaskákmót Kragans (utan Kópavogs)

    0
    1006
    Hvenær:
    23. apríl, 2024 @ 16:30 – 19:30
    2024-04-23T16:30:00+00:00
    2024-04-23T19:30:00+00:00
    Hvar:
    Miðgarður
    Vetrarbraut 18
    210 Garðabær
    Ísland
    Skólaskákmót Kragans (utan Kópavogs) @ Miðgarður | Garðabær | Garðabær | Ísland

    Kragamót grunnskóla í skólaskák 2024 fer fram þriðjudaginn 23. apríl í fjölnota íþróttahúsinu Miðgarði í Garðabæ á 3. hæð.

    Teflt er í 3 einstaklingsflokkum:

    1-4. bekkur kl: 16:30
    5-7 bekkur, kl: 16:30
    8-10 bekkur kl. 17:30
    reiknað er með að hver flokkur taki u.þ.b.. 1,5 til 2 tíma.

    Hver skóli af svæðinu getur sent 2 keppendur í hvern flokk óháð skákstigum. Að auki geta allir þeir sem hafa skákstig eða eru sendir af skákþjálfurum félaganna verið með.

    Umferðarfjöldi og tímamörk verða tilkynnt á mótsstað en má gera ráð fyrir 5-7 umferðum í hverjum flokki með umhugsunartíma 5 mínútur  + 2 sek á leik á mann.

    Skráningarfrestur er til kl. 22, mánudaginn, 22. apríl. Verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Sigurvegari hvers flokks fær keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer á Akureyri í byrjun maí.

    Nánari upplýsingar gefur skákstjóri Páll Sigurðsson. (8603120) tg@tafl.is.

    Skráning: https://forms.gle/rFbd16EiaDo5YqC97

    Hér má hverjir eru skráðir: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1iclplpy76jIPJBxAI2NooRA95htk8Y7KLoqxpl3R_Hs/edit?usp=sharing

    - Auglýsing -