Flestir keppendur Landsmótsins. Mynd: Daði Óm.

Mótið fer fram í stúkunni við Kópavogsvöll í Glersalnum á 3.hæð

Dagskrá:
Mið 17.apríl fyrir hádegi 8:30 – 11:15: 5.-7.bekkur
Umferðir og tímamörk: 6.umferðir, 7min og 3sek viðbót við hvern leik.

Mið  17.apríl  fyrir hádegi 11:30 – 13:15: 2.bekkur
Umferðir og tímamörk: 5.umferðir,  4min og 1sek viðbót við hvern leik

Mið  17.apríl  eftir hádegi 13:30 – 15:00: 1.bekkur – peðaskák
Umferðir og tímamörk: 5.umferðir,  4min og 1sek viðbót við hvern leik

Fim  18.apríl  fyrir hádegi 08:30 – 11:15: 8.-10.bekkur
Umferðir og tímamörk: 6.umferðir,  7min og 3sek viðbót við hvern leik

Fim  18.apríl  fyrir hádegi 11:30 – 13:15: 4.bekkur
Umferðir og tímamörk: 5.umferðir,  4min og 1sek viðbót við hvern leik

Fim  18.apríl  eftir hádegi 13:30 – 15:00: 3.bekkur
Umferðir og tímamörk: 5.umferðir,  4min og 1sek viðbót við hvern leik

Fös  19.apríl  fyrir hádegi 08:30 – 11:30: stúlkur 5.-10.bekkur
Umferðir og tímamörk: 6.umferðir,  7min og 3sek viðbót við hvern leik

Reglur:
Mæting helst korter fyrir upphafstíma móts.
Mikilvægt að skólar sendi fullorðinn ábyrgðarmann með sínum krökkum til að hjálpa til við eftirlit og til að halda uppi aga. Stúlkur í 5.-10 bekk geta keppt í opnum flokki og/eða sérstökum stúlknaflokki. Þeir sem eru í 1.bekk og vilja tefla hefðbundna skák geta teflt í 2.bekkjar mótinu.
Mótsreglur

Undankeppni fyrir Landsmótið í skólaskák:

Landsmótið í skólaskák verður haldið í Brekkuskóla á Akureyri helgina 4.-5.mai. Þar er keppt í 8.-10.bekk, 5.-7.bekk og 1.-4.bekk. Tvö efstu sætin í Skólamóti Kópavogs í 8.-10.bekk, 5.-7.bekk og 4.bekk öðlast rétt til þátttöku fyrir hönd Kópavogs. Þeir nemendur í 1.-3.bekk sem vilja keppa um sæti í 1.-4.bekkjar Landsmótinu geta tekið þátt í 4.bekkjarmótinu ásamt sínu bekkjarmóti. Þeir geta þó ekki unnið til verðlauna í 4.bekkjar mótinu.
Þátttökugjald:
30.000kr á hvern skóla fyrir öll mótin og rennur það til verðlaunakaupa og skákstjórnunar. Ef færri en 10 koma frá skóla þá er þátttökugjaldið 3000kr á hvern keppanda.
Skráning og mótstjórn:
Umsjónarmenn með skákstarfi í hverjum skóla skrá sína nemendur á skák.is (guli kassinn hægra megin á síðunni). Nemendur geta líka sjálfir skráð sig.
Skákstjóri er Daði Ómarsson, en skipuleggjandi er Halldór Grétar Einarsson (halldorgretareinarsson@gmail.com). Þeim til aðstoðar verða skákkennarar í Kópavogi og stjórnarmenn Skákdeildarinnar.

Skráningu líkur kl 19:00 þriðjudaginn 16.apríl

Upplýsingar um þegar skráða keppendur:

- Auglýsing -