Það má segja að óveður hafi geysað í fimmtu umferð Íslandsmótsins í skák, bæði úti og eins á borðunum! Það var óveður á nánast hverju einasta borði og gríðarleg skemmtilegar skákir og flottir leikir á boðstólnum. Einhverskonar met hlýtur einnig að hafa verið sett þar sem engin af skákunum sex fór yfir 40 leiki og kláruðust þær allar undir lok fyrstu tímamarkanna.

Helgi Áss Grétarsson er orðinn einn efstur að lokinni umferðinni en Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson eru hálfum vinningi á eftir.

Fyrsta skákin til að klárast var viðureign Dags Ragnarssonar og Guðmundar Kjartanssonar. Guðundur ætlaði sér örugglega að tefla af krafti og ná í sigur með svörtu mönnunum. Hann valdi uppstillingu sem minnir um margt á fræga skák Fressinet gegn Kramnik frá árinu 2013 þar sem Kramnik var gjörsamlega slátrað!

Skák Dags og Guðmundar varð strax nokkuð frumleg. Guðmundur virtist koma betur út úr rásblokkinni. Dagur náði að laga stöðuna og var kominn í aðgerðir á drottningarvæng þegar Guðmundur lék af sér.

17…Bxc4?? var afleikur 18.Hxc4! dxc4 og hér missti Guðmundur greinilega af kröftugum leik Dags.

19.Rxa5!! og svartur getur gefið!

Snarpur sigur hjá Degi sem virðist í ágætis formi á mótinu.

Vignir fór í gamla vopnabúrið sitt og beitti hollenskri vörn gegn Lenku Ptacnikovu. Líklegast var ákvörðunin hjá hvítum að gefa svartreitabiskpuinn ekki góð til langtíma þar sem svartur missti ekki tökin á e5 reitnum sem er hans veikleiki í grjótgarðinum.

Vignir virðist á góðri leið með að ná sér í góða stöðu, missti líklegast af vænlegri leið með 18…f4 sem hefði opnað taflið svörtum í vil. Mikilvægasta ákvörðunin kom þó í 21. leik eftir að hvítur drap á e4.

Hér virðist svartur verða að drepa með f-peði 21…fxe4 en Vignir valdi 21…dxe4 og lenti í vandræðum eftir 22.d5 þar sem hann hleypti hvítum í valdað frípeð.

Vignir fann enga leið í gegn og var í raun með mun verra tafl þear hann bauð tímanlegt jafntefli sem Lenka þáði. Annað jafnteflið í röð þar sem Lenka mætti vera aðeins harðari við stórmeistarana og pína þá með góðu stöðurnar!

Bárður biður eftir Héðni með kóngspeðið úti

Héðinn Steingrímsson náði góðum sigri gegn Bárði og náði sér á strik eftir tvær tapskákir. Héðinn tefldi miðtaflið mjög vel og fékk upp góða sókn í anda kóngsinderskrar varnar og Bárður varð að leggja niður vopn í 40. leik.

Helgi Áss Grétarsson tyllti sér einn í toppsætið með glæsilegrum sigri á Olgu Prudnykovu. Helgi beitti modern-byrjun eins og hann er vísa með 1…g6 eftir 1.e4.

Helgi tók hárrétta ákvörðun í miðtaflinu og fórnaði manni

19…exd4! 20.bxc4 bxc4 með hættulegu spili…Helgi náði í kjölfarið að búa til „peða-kubb“

Helgi fann svo glæsilega leið til að viðhalda frumkvæði sínu og fórnaði öðrum manni!

29…Rxe5! 30.fxe5 Bxe5 hrastlega teflt hjá Helga en líklegast kórrétt líka! Svörtu peðin reyndust í framhaldinu óstöðvandi og Helgi sigldi vinningnum heim.

Hannes bíður átekta gegn Hilmi

Hilmir beitti nýmóiðns leikaðferð í tveggja riddara tafli þar sem hvítur leyfir svörtum að tvöfalda peð sín á miðborðinu. Hvítur heldur umframpeði en svarta staðan á að vera í fínu lagi. Stöðutýpan virtist hinsvegar henta Hilmi vel og tefldi Hilmir miðtaflið eins og herforingi og hitti frekar en ekki á bestu leikina í stöðunni. Það skilaði sér í „trikki“ sem sigldi vinningnum heim.

33.Rc7! grefur algjörlega undan svörtu stöðunni og svartur nær ekki að halda valdi á öllum sínum mönnum.

Tvær kröftugar skákir hjá Hilmi í röð sem er nú ásamt Vigni hálfum vinningi á eftir Helga Áss.

Hjörvar hefur byrjað mjög illa á Íslandsmótinu og framan af skák hans gegn Aleksandr Domalchuk-Jonassyni hafa örugglega margir verið orðnir stressaðir fyrir hans hönd þar sem Aleksandr tefldi byrjunina mjög hratt og byggði upp stórt tímaforskot.

Byrjunin sem Aleksandr valdi var Schliemann afbrigðið gegn Spánverjanum, hið sama og Praggnanandhaa notaði til að vinna mikilvæga skák gegn Vidit á Áskorendamótinu á dögunum.

Hjörvar reyndist þó vandanm vaxinn, fórnaði manni í byrjuninni og fékk fjögur peð fyrir mann. Menn Hjörvars reyndust líka allir betur stæðir og Hjörvar tók algjörlega yfirhöndina og missti ekki tökin að þessu sinni!

Úrslit

Aðeins eitt jafntefli í umferðinni og þar hefði hæglega verið hægt að ná í vinning!

Staðan

Fjórir efstu verða að teljast líklegastir í titilbaráttuna en aðrir þurfa að raða saman vinningunum til að halda í við toppinn.

Pörun 6. umferðar

.

Skemmtilegar skákir í sjöttu umferð þar sem Helgi Áss mætir Hilmi í toppslag. Heimsmeistararnir fyrrverandi Héðinn og Hannes mætast, Úkraínuslagur hjá Aleksandr og Olgu og flestar viðureignir nokkuð jafnar á pappírnum gamla góða.

6. umferð hefst klukkan 15:00 eins og venjulega í Mosfellsbænum.

- Auglýsing -