Tíunda og næstsíðasta umferð Skákþings Íslands hefst kl. 15 í dag. Helgi Áss er í vænlegri stöðu með 1½ vinnings forskot á Vigni Vatnar.
- Chess-Results
- Skákskýringar á YouTube (hefjast um 16:30/17:00)
- Beint á Chess.com
- Beint á Lichess
- Beint á Chessbase
Báðir fá þeir erfiðar skákir í dag. Helgi teflir við Guðmund Kjartansson, sem hefur unnið þrjár skákir í röð eftir skrykkjóta byrjun. Vignir teflir við Hannes Hlífar. Vignir þarf nauðsynlega að minnka forystu Helga Áss niður í a.m.k. einn vinning en þeir mætast í lokaumferðinni á morgun.
Umferð dagsins:
- Guðmundur Kjartansson (5) – Helgi Áss Grétarsson (8)
- Vignir Vatnar Stefánsson (6½) – Hannes Hlífar Stefánsson (4½)
- Bárður Örn Birkisson (3½) – Hilmir Freyr Heimisson (5½)
- Dagur Ragnarsson (4½) – Hjörvar Steinn Grétarsson (4½)
- Lenka Ptácníková (2) – Olga Prudnykova (2)
- Héðinn Steingrímsson (3) – Alekasandr Domalchuk-Jonasson (5) 0-1*
Tilvalið að kíkja á skákstað. Skáktilboð á veitingastaðnum.
- Chess-Results
- Skákskýringar á YouTube
- Beint á Chess.com
- Beint á Lichess
- Beint á Chessbase
- Auglýsing -













