Vignir Vatnar að tafli.

Þrír íslenskir stórmeistarar tefla nú í České Budějovice í Tékklandi þar sem skákhátíð fer nú fram. Íslensku stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson og Vignir Vatnar Stefánsson taka þar þátt í lokuðum flokkum. Helgi og Hannes eru saman í flokki (A) og svo er Vignir einn í hinum flokknum (B).

Vignir hefur unnið báðar sínar skákir og lagði Vignir tékkneska stórmeistarann Petr Haba (2427) að velli í dag með svörtu mönnunum. Haba er traustur stórimeistari sem hefur teflt við fjölmarga Íslendinga og reynst þeim erfiður.

Vignir beitti Sikileyjarvörn og virtist gera vel í miðtaflinu og fékk hættuleg færi. Í tímahraki hleypti Haba svo Vigni hættulega inn á sig og réði ekki við hótanirnar og Vignir kláraði dæmið.

Úrslitin voru ekki jafn hagstæð hjá þeim Helgi og Hannesi í A grúppunni.

Helgi hafði hvítt gegn FM Ondrej Svanda (2414). Helgi fékk ekki úr nógu miklu að moða í byrjuninni og sættist á þráleik í 25. leik þegar hann var líklega með örlítið verra ef eitthvað var.

Hannes hafði svart gegn Tomas Polak (2523) og varð að lúta í dúk. Staðan virtist í jafnvægi lengst af í miðtaflinu en Pólverjinn náði að loka fyrir allt mótspil Hannesar og tók smátt og smátt yfir stöðuna og vann peð í endataflinu sem varð að hættulegum frelsingja sem dugði til sigurs.

Þriðja umferð fer fram á morgun en umferðir hefjast að jafnaði um klukkan 14:00 að íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með skákum beint með því að smella á lichess-tengilinn hér að neðan!

- Auglýsing -