Viðureignir dagsins eru komnar af stað á Ólympíuskákmótinu í Batumi.

Karlarnir í opna flokknum etja kappi við lið Kyrgystan en kvennaliðið fær lið Eþíópíu.

Íslendingar nota aðalliðið í dag og erum við stigahærri en Kyrgystan á öllum borðum. Tveir alþjóðlegir meistarar eru þó í liðinu og rétt að nálgast verkefnið af varkárni.

Lið Eþíópíu ætti að samkvæmt stigum að vera auðvelt verkefni og krafa dagsins er klárlega sigur. Ísland er mun stigahærra á öllum borðum.

Beinar útsendingar á Skak.is: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Mótið á chess-results 8.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

- Auglýsing -