Alþjóðlegi skákdagurinn er 20. júlí ár hvert. Tilefnið er stofnun FIDE – alþjóða skáksambandsins sem stofnað var þann dag, árið 1924, og fagnar því 100 ára afmæli í dag!

Forseti FIDE sendir kveðju til skákheimsins í tilefni dagsins.

Ýmislegt er á seyði í dag. Í tilefni þess ætlar FIDE að standa fyrir heimsmetstilraun þann 20. júlí. Markmiðið er metfjöldi í heiminum tefli þann dag. Sjá:  https://100.fide.com/gwr/.

Fjögur íslensk skákmót eru í gangi í dag og eitt á morgun!

Hæst ber útiskákmót á Ingólfstorgi þar sem margir af sterkustu skákmönnum landsins taka þátt. Hæst ber stórmeistarana Þröst Þórhallsson og Braga Þorfinnsson. Ekki er loku fyrir það skoið að góður gestur kíki við og leiki fyrsta leikinn!

Keppendalistinn

Svo er einnig mót haldin á Húsavík og Akureyri í tilefni skákdagsins. Sumarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur er í fullum gangi og Firmakeppni SSON fer fram á morgun!

- Auglýsing -