Hannes Hlífar Stefánsson teflir nú á Kanaríeyjum á opnu móti sem ber nafnið VII Torneo Internacional Jugando con las Estrellas 2024 en enska heitið á mótinu er „Playing with the stars„.
Eftir frekar náðugar fyrstu tvær umferðir kom loks mótspyrna í þriðju umferðinni. Hann mætti þá FIDE meistara frá Kúbu, Luis Hector Alba (2295). Hann hafði fínt tafl úr byrjuninni og í miðtaflinu og hefði kannski á einhverjum stað átt að gera útaf við skákina en Kúbverjinn varðist vel. Hannes var aldrei beint í hættu og hafði á endanum betur á gömlu seiglunni þar sem frípeð hans reyndust hættuleg.
Seinni skákin gekk ekki jafn vel. Þar hafði Hannes svart gegn Kirk Ghazarian (2490), ungum og efnilegum bandarískum alþjóðlegum meistara. Kirk sýndi hvað í honum býr og yfirspilaði Hannes á miðborðinu í ítalska leiknum.
Hannes því með 3 vinninga af 4, nokkurn veginn á pari og framundan einföld umferð á morgun þar sem hann mætir kvenstórmeistaranum Yaniela Forgas Moreno(2217).
Keppendur á móitnu eru alls 120, langflestir spænskir. Titilhafar eru vel yfir þriðja tug og er Hannes númer 6 í styrkleikaröðinni en stigahæstur er Cristobal Villagra (2603) frá Chile.














