Íslensku keppendurnir voru aftur taplausir í áttundu og næst síðustu umferð opna Norðurlandamótsins í Niðarósi (Þrándheimi) í Noregi. Hjörvar gerði jafntefli í sinni skák en Olga vann sína skák.
Hjörvar (5 af 7 ) hafði svart og mætti FM Havard Haug (2315) í áttundu umferðinni. Hjörvar fékk örlítið betri séns í endatafli með mislitum biskupum og hrók. Hjörvar reyndi að kreysta það sem hann gat úr stöðunni en lenti þess í stað í tapaðri stöðu…allavega fræðilega.
Sem betur fer klikkaði tæknin hjá Norðmanninum í drottningarendataflinu og jafntefli niðurstaðan.
Olga (3,5 af 7) hafði hvítt gegn serbnesku landsliðskonunnii Jovönnu Eric (2138). Skak.is reyndist sannspá í gær þegar hún spáði Olgu sigri í þessari skák! Skákin varð gríðarlega skemmtileg og spennandi. Olga tefldi gríðarlega hvasst í óhefðbundinni byrjun og leit sókar hennar vel út. Eftir mikil átök kom endatafl þar sem Olga hafði biskup og fjögur peð gegn hrók og riddara!
Endataflið hefði átt að vera jafntefli en sú serbneska lék mjög illa af sér og Olga kom peði upp í borð og vann skákina!
Í lokaumferðinni á morgun fær Hjörvar hvítt gegn FM Sergey Eliseev (2275) en Olga hefur svart gegn IM Maxim Barth Stanford (2260). Jon Ludvig Hammer, Jung Min Seo og Boris Chatalbasev hafa 6 vinninga og berjast um titilinn á mótinu.
Mótið er tæplega 70 manna alþjóðlega skákmót sem jafnframt er Norðurlandamót í skák. Fjöldi titilhafa tekur þátt og sendir Ísland tvo keppendur til leiks. Hjörvar Steinn Grétarsson, sem var stigahæsti skákmaður Íslands ekki alls fyrir löngu, er fulltrúi okkar ásamt Íslandsmeistara kvenna, Olgu Prudnykovu. Hjörvar er sjöundi í stigaröðinni en framundan er væntanlega spennandi mót. Norðmaðurinn Jon Ludvig Hammer (2596) er stigahæstur keppenda.
[/pgn]
Olga hefur 3,5 vinning og fær hvítt gegn serbnesku landsliðskonunnii Jovönnu Eric (2138). Skak.is spáir Olgu vinningi í þessari skák!