Undanmót Íslandsmótsins í Netskák er hafið. Tæplega 50 keppendur eru mættir til leiks og mikið undir þar sem þrír efstu vinna sér inn þátttökurétt á glæsilegu Íslandsmóti í Netskák. Í lokamótinu er keppt með útsláttarfyrirkomulagi og einvígi í beinni hjá Sjónvarpi Símans auk veglegra verðlauna!
Fjölmargir titlhafar eru mættir til leiks, þar á meðal alþjóðlegu meistararnir Arnar Gunnarsson, Dagur Ragnarsson og Dagur Arngrímsson auk fjölda titilhafa.
Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið sjálft er hér á chess.com fyrir þá sem vilja fylgjast með!
Chess After Dark (CAD) er með Undanmótið í beinni lýsingu ásamt Birni Þorfinnssyni
- Auglýsing -















