Alþjóðlega geðheilbrigðismótið 2024

    0
    732
    Hvenær:
    17. október, 2024 @ 19:30 – 22:30
    2024-10-17T19:30:00+00:00
    2024-10-17T22:30:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Vinaskákfélagið og Taflfélag Reykjavíkur
    Alþjóðlega geðheilbrigðismótið 2024 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert og hefur Vinaskákfélagið skipulagt þetta skákmót undanfarin 18 ár, og í samvinnu við Taflfélag Reykjavíkur.

    Mótið verður haldið, fimmtudaginn, 17. Október í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og hefst klukkan 19:30.

    Birnukaffi verður á sínum stað á mótinu!

    Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 4 mín. + 2 sek.

    Hlé verður gert eftir 5 umf. Til að skákmenn geti fengið sér kaffi og vöflur.

    Glæsileg verðlaun verða á mótinu eins og venjulega og vill Vinaskákfélagið þakka Skruddu bókaforlaginu sérstaklega fyrir þeirra þátt í að styrkja félagið með bókagjöfum.

    Eftirfarandi verðlaun eru þessi:

    1. Sæti: Gull peningur + Bikar og bók.
    2. Sæti: Silfur peningur + bók.
    3. Sæti: Brons peningur + bók.
    4. Sæti: Kvennaverðlaun: Gull peningur + bók.
    5. Sæti: 50 +: Gull peningur + bók.
    6. Sæti: U16: Gull peningur + bók.

    Skráning fer fram á staðnum.

    Sigurvegari 2023 var: Vignir Vatnar Stefánsson.

    Fólk er beðið um að koma snemma til að skrá sig.

    Allir velkomnir!!

    - Auglýsing -