Kátir Mallorca-farar! Mynd: Dagur Ragnarsson.

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2452), og alþjóðlegu meistararnir Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2384) og Dagur Ragnarsson (2346) sitja allir þessa dagana að tafli í Mallorca á Spáni. Helgi teflir í GM-flokki en hinir tveir í IM-flokki. Mótið nefnist Colonia Sant Jordi og teflt í lokuðum flokkum.

GM-flokkur

Í flokki Helga eru búnar þrjár umferðir en mótið hófst degi fyrr.

Helgi hóf leik með jafntefli með hvítu mönnunum. Helgi mætti þar FIDE-meistaranum Diego Anton Vergara (2405). Helgi tefldi traust og fékk aðeins þægilegra endatafl. Svartur tefldi vörnina vel og Helgi fann ekki leið til að klekkja á anstæðing sínum og lauk skákinni með þráleik í endatafli.

Á laugardeginum varð Helgi að lúta í dúk með svörtu gegn stórmeistarnum David Larino Nieto (2420). Helgi hafði fína stöðu úr byrjuninni og fékk betri, hafði betri peðastöðu og vann peð.

27. leikur Helga, 27…Df7?? sneri taflinu hinsvegar við. 28.e6 Df5 29.e7 He8 30.Dc4 setti Helga í mikil vandræði. Helgi reyndi 30…Re5 en lenti þá í fléttu.

31.Rf6+ Kh8 32.Rxe8! Rxc4 33.Rxg7! og hvítur er liði yfir.

Helgi tók þrálék snemma í byrjuninni í næstu skák gegn alþjóðlega meistaranum Harry Grieve (2456) sem hafði teflt hratt og greinilega með sitt á hreinu. Helgi ákvað því að rugga engum bátum og taka eitt „Botvinnik-jafntefli“.

IM-flokkur

Tveimur umferðum er lokið í flokki Dags og Sasha. Hafa þeir báðir einn og hálfan vinning.

Dagur byrjaði á sigri með svörtu gegn pólskum skákmanni Andrzej Krzywda (2192). Dagur tók frumkvæðið snemma í byrjunni.

7…g5!? var aggressífur og athyglisverður líkur…og líka bara góður! Dagur fékk skemmtileg færi í framhaldinu og sá pólski missti eiginlega algjörlega þráðinn.

Aleksandr vann sína skák með hvítu. Hann fékk mjög fína stöðu úr byrjuninni, lék því svo eilítið niður en fékk aftur góða stöðu og vann skiptamun. Svartur náði hinsvegar að berjast vel í endataflinu og var nærri jafntefli en seiglan var góð hjá Aleksandr sem náði sigri.

Í 2. umferð gerðu þeir báðir jafntefli. Skák Dags var alltaf í jafnvægi og lítið gerðist í hróksendataflinu.

Aleksandr komst peði yfir í hróksendatafl en peðin voru öll á sama væng og varnir svarts héldu þó hann þyrfti að verjast í 100+ leiki.

Taflmennska heldur áfram á mánudeginum í báðum flokkum, ein skák tefld á dag.

- Auglýsing -