Sjötta einvígisskák Heimsmeistaraeinvígis Ding Liren og Dommaraju Gukesh fór fram í Singapúr í dag. Ding Liren stýrði hvítu mönnunum og tefldi London-byrjanakerfið. Ding fékk örlítið betra tafl en ekkert til að vinna úr og jafntefli varð fljótt óumflýjanlegt. Keppendur fara nú jafnir 3-3 inn í frídag númer tvö í einvíginu.

Hikaru bregst við blaðamannafundinum eftir sjöttu skákina

Sjöunda skákin fer fram á mánudaginn. Skákirnar hefjast klukkan 09:00 á íslenskum tíma. Tefldar eru þrjár skákir og svo er frídagur.

Stúderingar á skák #6:

Skákmenn eru eiginlega „yfirspilltir“ þegar kemur að aðgengi að efni frá heimsklassaskákmönnum. Hér að neðan eru nokkur dæmi um stúderingar á 6. skákinni. Þeir sem hafa verið að gera vídeó-samantektir hingað til eru menn eins og Carlsen, Caruana og Hikaru ásamt Kramnik tjá sig um gang mála!

Hikaru Nakamura stórmeistari

 

- Auglýsing -