Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson hefur fullt hús vinninga að lokinni 4. umferð Ungmennameistaramóts Íslands U22 – Meistaramóts Skákskólans. Vignir hefur teflt af miklu öryggi hingað til og spurningin er hvort einhver nái að skáka meistaranum áður en yfir lýkur.

Benedikt Briem, Benedikt Þórisson og Gunnar Erik Guðmundsson koma næstir með 3 vinninga. Sá síðastnefndi fær að reyna sig gegn Vigni í 5. umferð.
Örvar Hólm Brynjarsson og Markús Orri Jóhannsson hafa báðir 2,5 vinning og hafa náð mjög góðum úrslitum miðað við eigin skákstig.

Mótinu lýkur á morgun, sunnudag, með tveimur umferðum.

Dagskrá mótsins:
- umferð kl. 18:00 fimmtudaginn 12. desember
- umferð kl. 18:00 föstudaginn 13. desember
- umferð kl. 11:00 laugardaginn 14. desember
- umferð kl. 16:00 laugardaginn 14. desember
- umferð kl. 11:00 sunnudaginn 15. desember
- umferð kl. 16:00 sunnudaginn 15. desember
Verðlaun:
1. sæti: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 100.000 kr. Þátttökuréttur í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands 2026.
2. sæti: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
3.–5. sæti: Úttekt hjá Chessable.
Stigaflokkaverðlaun:
1900 – 2100 elo:
1. verðlaun: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 40.000 kr.
U-1900 elo:
1. verðlaun: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 40.000 kr.
Sýnt er beint frá öllum viðureignum mótsins, með 15 mínútna seinkun.
Chess-results
Beinar útsendingar
















