Hraðskákkeppni taflfélaga 2025

    0
    674
    Hvenær:
    19. febrúar, 2025 @ 19:00 – 22:00
    2025-02-19T19:00:00-01:00
    2025-02-19T22:00:00-01:00
    Hvar:
    Hlaðan Gufunesbæ
    45VR+JJ5
    Gufunesvegur, 112 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    17000
    Tengiliður:
    Helgi Árnason
    Hraðskákkeppni taflfélaga 2025 @ Hlaðan Gufunesbæ | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Hraðskákkeppni taflfélaga 2024 fer fram í Hlöðunni, Gufunesbæ miðvikudaginn 19. febrúar, klukkan 19:00. Hámark 14 sveitir. A og B sveitir ganga fyrir við skráningu. Ókeypis kaffiveitingar í Hlöðunni.

    Þátttakendur á Öðlingamóti TR sem vilja tefla á hraðskákmótinu geta samið um frestun í 2. umferð við mótsaðila TR.

    Mótið er 9umferðir og tímamörkin 4 2. Hver sveit er skipuð 6 mönnum auk varamanna. Varamaður kemur ávallt inn á neðsta borð.

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

    Gefin eru tvö stig fyrir sigur í viðureign og eitt stig fyrir jafntefli. Það lið sem hlýtur flest stig er Íslandsmeistari skákfélaga í hraðskák 2025 og verði tvö lið efst og jöfn er tefld einföld umferð til úrslita um titilinn (dregið um lit á borði eitt og sitthvor liturinn á næstu borðum). Séu þrjú lið eða fleiri efst og jöfn eftir 11 umferðir, tefla þau tvö lið sem hlutu flesta vinninga, til úrslita um titilinn.

    Verðlaunagripir fyrir 3 efstu sveitirnar og efstu B-sveitina.

    Mótsgjald er 17.000 kr. fyrir A-sveit og 8000 kr. fyrir B-sveit

    Skráningarfrestur er til kl. 17 mánudaginn, 12. febrúar

    Nóg er af bílastæðum, ókeypis kaffi og nammi til sölu (posi).

    - Auglýsing -