Umdæmismót Norðurlands eystra í skólaskák

    0
    388
    Hvenær:
    4. apríl, 2025 @ 15:00 – 19:30
    2025-04-04T15:00:00+00:00
    2025-04-04T19:30:00+00:00
    Hvar:
    Skákheimilið
    Gjald:
    1000
    Tengiliður:
    Askell Orn Karason
    8978055
    Umdæmismót Norðurlands eystra í skólaskák @ Skákheimilið

    Í samvinnu við Skáksamband Íslands efnum við til Svæðismóts í skólaskák fyrir Norðurland eystra. Teflt verður um sæti á Landsmótinu í skólaskák á Ísafirði 3-4. maí nk.

    Teflt verður um svæðismeistaratitil í þremur aldursflokkum:

    1-4. bekk

    5-7. bekk

    8-10. bekk

    Hver skóli á svæðinu má senda keppanda í hvern aldursflokk. Þó ætti að vera pláss fyrir a.m.k. þrjá frá þeim skólum þar sem áhuginn er mestur, jafnvel fleiri.

    Teflt verður í Skákheimilinu. Yngsti flokkur hefur keppni kl. 15:00, en eldri flokkarnir tveir kl. 17:00.

    Þátttakendur keppa hver fyrir sinn skóla.

    Mótsgjald er kr. 1000 fyrir hvern þátttakanda.

    Þátttaka tilkynnist til mótsstjóra á netfangið askellorn115@gmail.com fyrir lok dags hinn 3. apríl.

    - Auglýsing -