Dagur Ragnarsson laut í dúk gegn Pragga í gær. Mynd: Stefán Mér Pétursson.

Fimm Íslendingar taka þátt í meistaraflokk (Masters) alþjóðlega mótsins í Mön sem hófst í gær. Auk skólastjóra Skákskóla Íslands, Helga Ólafssonar (2510) eru það Vignir Vatnar Stefánsson (2291), Dagur Ragnarsson (2251), Gauti Páll Jónsson (2073) og Aron Þór Mai (2063).

Helgi vann hina rússnesku Anastaysa Paramzina (2243). Sjálftsagt hefur ekki skort slagkraft í taflmennsku Helga! 🙂 en hinir íslensku keppendurnir töpuðu enda allir að tefla við mun stigahærri andstæðinga. Vignir og Dagur tefldu við indversku undrin Nihal Sarin (2572) og Praggnanandhaa (2519).

Í annarri umferð, sem hefst kl. 13:30, teflir Helgi við indverska stórmeistarann, og siguvegar GAMMA Reykjavíkskákmótsins 2018, Adihiban (2668). Dagur teflir við indversku skákkonuna Tania Sachdev (2400).

Það er einnig teflt í tveimur öðrum flokkum. Major og Minor. Þar tefla einnig Íslendingar. Taflmennskan þar hefst á morgun.

 

 

- Auglýsing -