Opna Íslandsmótið í skák – Icelandic Open fer fram á Blönduósi dagana 15.-21. júní n.k. Tefldar verða níu umferðir á sjö dögum. Skákhátíðin hefst með aðalfundi SÍ sem fram fer laugardaginn 14. júní og lýkur með sterku hraðskákmóti, Blönduós Blitz, sem fram fer 22. júní.
Alls eru 40 keppendur skráðir til leiks, þar af sex stórmeistarar. Stigahæsti skráði keppandinn er goðsögnin Ivan Sokolov (2590).
Eins og áður þegar Icelandic Open fer fram er teflt um ýmsa Íslandsmeistaratitla. Efsti Íslendingurinn verður Íslandsmeistari í skák, efsta íslenska konan verður Íslandsmeistari kvenna, efsti íslenski öldungurinn (65+) verður Íslandsmeistari öldunga og efsta íslenska ungmennið (u22) verður Íslandsmeistari ungmenna.
Teflt verður Krúttinu sem er afar skemmtilegt viðburðarrými á Blönduósi. Nánari upplýsingar um Krúttið má nálgast hér.

Í kringum mótið verða margvíslegir skemmtilegir viðburður. Þar ber hæst Blönduós Blitz sem fram fer 22. júní. Einnig verður haldið Pub Quiz, pílumót, frisbee-golf mót og hefðbundið golfmót. Sérstakt stúlknamót verður haldið 15. júní. Ungmennamót, fyrir keppendur á fótboltamóti, verður haldið 14. júní og skákmót fyrir heimamenn verður einnig á dagskrá.

Hátíðarkvöldverður verður haldinn laugardaginn 21. júní. Þangað mætir sjálfur forseti Íslands, Frú Halla Tómasdóttir. Fljótlega verður opnað fyrir skráningu í hátíðarkvöldverðinn.
Tilvalið er fyrir skák- og skákáhugamenn, sem ekki ætla að taka þátt í sjálfu mótinu, að mæta í hátíðarkvöldverðinn og Blönduós Blitz.
Bent er á að hægt er að taka þrjár yfirsetur fram í sjöunda umferð. Enn er opið fyrir skráningu í sjálft mótið. Allar upplýsingar um mótið má nálgast hér.
Upplýsingar um gistingu má nálgast hér.
- Auglýsing -















