VignirVatnar.is heldur áfram með Le Kock mótaröðina í samvinnu við Le Kock og Ölvisholt. Þriðja mótið fer fram miðvikudagskvöldið 2. júlí kl 19.30 á Le kock. (Tryggvagata 14, 101 Reykjavík).

Fyrsta mótið fór fram í maí þar sem stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson varð hlutskarpastur. Mót númer tvö vann Vignir Vatnar sjálfur.

Mótin verða 8 í heildina og eru dagsetningarnar á þeim yfirleitt fyrsti miðvikudagurinn í hverjum mánuði.

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og á öllum mótunum verða verðlaun eftirfarandi:

1. 60,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

2. 40,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

3. 20,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

U2000: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Efsti stigalausi: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Efsta konan: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Öll mótin verða reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

Stigagjöfin verður með Eurovision stigakerfi. 

Svona verða stigin eftir sætum, frá fyrsta og niður: 12, 10, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1.

Stig í mótaröðinni eftir tvö mót

  1. GM Hannes Stefánsson – 18 stig (12 + 6)
  2. IM Björn Þorfinnsson – 17 stig (10 + 7)
  3. GM Vignir Vatnar Stefánsson – 12 stig (0 + 12)
  4. IM Dagur Ragnarsson – 10 stig (8 + 2)
  5. FM Bárður Örn Birkisson – 10 stig (6 + 4)
  6. FM Örn Leó Jóhannsson – 10 stig (0 + 10)
  7. GM Helgi Áss Grétarsson – 8 stig (0 + 8)
  8. GM Bragi Þorfinnsson – 7 stig (7 + 0)
  9. FM Simon Þórhallsson – 5 stig (5 + 0)
  10. Arnar Milutin Heiðarsson – 5 stig (0 + 5)
  11. FM Sigurbjörn Björnsson – 4 stig (4 + 0)
  12. FM Róbert Lagerman – 3 stig (3 + 0)
    _______________________________________
  13. FM Þorsteinn Þorsteinsson – 3 stig (0 + 3)
  14. CM Björn Holm Birkisson – 2 stig (2 + 0)
  15. Benedikt Briem – 1 stig (1 + 0)
  16. Davíð Kolka – 1 stig (0 + 1)

12 efstu keppendur á samanlögðum stigum (6/8 bestu mótum gilda) tefla svo til úrslita í beinni útsendingu, þar verða verðlaunin eftirfarandi:

  1. X TBA

  2. X TBA

  3. X TBA

Þátttökugjald á mótið er 3.000 kr og greiðist hér:
Kennitala: 570418-2030 – Reikningsnúmer: 0133-26-013982

Áskrifendur VignirVatnar.is fá frítt í mótið!

Mótið er opið fyrir öllum en keppendur undir 15 ára aldri þurfa að vera með forráðamann með sér.

Hlökkum til að sjá ykkur á þessum frábæra veitingastað!

Kær kveðja, Le Kock og VignirVatnar.is

- Auglýsing -