Í dag, 1. september eru 53 ár síðan að einvígi aldarinnar kláraðist 1972 í Laugardalshöllinni eins og löngu er orðið frægt. Þremur árum eftir lok einvígisins var eftirfarandi myndskeið tekið upp en hefur ekki áður verið birt vegna óvissu með höfundarrétt.
Nú 50 árum síðar er sú óvissa svo sannarlega ekki til staðar! FIDE-meistarinn Sigurbjörn Björnsson hafði frumkvæði að því að koma efninu á stafrænt form. Í myndbandinu sjáum við Friðrik Ólafsson, árið 1975 rifja upp einvígið fræga.
Friðrik fer yfir gang mála og auk þess sjáum við myndskeið bæði úr einvíginu og svo lokahófinu.
Enskur texti hefur verið settur á myndbandið svo skákheimurinn fái notið þessa sögulega efnis!
- Auglýsing -














