Annar keppnisdagur Norðurlandamótsins í skólaskák í Finnlandi fór fram í dag, þegar tefldar voru tvær umferðir.

Hvaleyrarskóli og Rimaskóli tefla á mótinu sem fram fer í Helsinki dagana 12.-14. september.

Sveit Hvaleyrarskóla (U17):

  1. Tristan Nash Alguno Openia
  2. Milosz Úlfur Olszeski
  3. Kristófer Árni Egilsson
  4. Katrín Ósk Tómasdóttir
  5. Emilía Klara Tómasdóttir

Skáksveit Hvaleyrarskóla fékk tvær harðar sveitir í dag og varð sveitin úr Hafnarfirði að sætta sig við tvö 0-4 töp. Liðsmenn fengu oft á tíðum ágætar stöður eftir byrjunina en það örlaði á óskynsamlegri tímanotkun. Vænlegar stöður urðu því fórnarlömb fljótfærni sem hinir efnilegu krakkar úr Hvaleyrarskóla læra af. Sveitin á mikið inni og með skynsamlegri nálgun munu vinningar detta inn á lokadeginum. Hvaleyrarskóli er í sjötta og neðsta sæti eftir fjórar umferðir.

Sveit Rimaskóla (U13):

  1. Tristan Fannar Jónsson
  2. Emilía Embla B. Berglindardóttir
  3. Sigrún Tara Sigurðardóttir
  4. Emilía Sigurðardóttir
  5. Tara Líf Ingadóttir

Skáksveit Rimaskóla hóf daginn eins og Hvaleyrarskóli, með 0-4 tapi, gegn sterkri sveit. Í þriðju umferð gerði svo sveitin 2-2 jafntefli gegn Giersings realskole frá Danmörku. Rimaskóli er í fjórða sæti fyrir lokadaginn og á möguleika á baráttu um verðlaunasæti með góðum úrslitum í lokaumferðunum.

Emilía Embla og Sigrún Tara ræða málin við upphaf 3. umferðar. Þær unnu báðar sínar skákir.

Sigrún Tara Sigurðardóttir tefldi skák dagsins á 3. borði fyrir Rimaskóla gegn Benjamin Tursic sem er rúmlega 200 skákstigum hærri en hún. Yfirveguð taflmennska og vönduð tækni skilaði góðum sigri.

Tristan Nash einbeittur á 1. borði Hvaleyrarskóla
Emilía Klara, varamaður Hvaleyrarskóla, nýtti tímann til stúderinga

Tímamörk eru 90 mínútur plús 30 sek og er dagskráin þétt!

Umferð 1 föstudag kl 19:00
Umferð 2 laugardag kl 09:00
Umferð 3 laugardag kl 15:00
Umferð 4 sunnudag kl 09:00
Umferð 5 sunnudag kl 14:00

Liðstjórar eru Ægir Magnússon frá Hvaleyrarskóla og Helgi Árnason frá Rimaskóla

Þjálfari er skólastjóri Skákskólans Björn Ívar Karlsson.

Lokaumferðirnar hefjast kl. 6:00 og 11:00 að íslenskum tíma.

- Auglýsing -