Evrópumót landsliða fer fram í Batumi í Georgíu dagana 5.-14. október. Fram að móti munum við kynna EM-faranna, einn á dag. Í dag kynnum við til leiks reynsluboltann Hannes Hlífar Stefánsson sem án hefur farið langoftast allra – þótt hann hafi ekki hugmynd um það!

Nafn:

Hannes

Félag:

KR

Hversu oft hefurðu farið á EM landsliða?

Veit ekki hversu oft ég hef farið á EM

Á hvaða ertu að horfa á Netflix (eða annarri veitu) þessa dagana?

Var að horfa síðast á Ruv saga Hitlers

Uppáhaldsskákmaður og af hverju?

Kasparov því hann teflir svo skemmtilega

Verður ManU í efri eða neðri helmingi úrvalsdeildarinnar?

Hef ekki hugmynd um Mancester

Uppáhaldskákbyrjun og af hverju?

Á ekki upphaldsbyrjun

Hvernig slakarðu á milli umferða á mótum?

Horfi á eitthvað á youtube

Batumi hefur stundum verið líkt við borg í Bandaríkjunum? Gætirðu nefnt hvaða?

Veit ekki hvernig Batumi tengist borg í usa

Georgía hefur átt margar þekktar skákkonur. Hverja telur þú þá næstþekktustu?

fylgist lítið með konunum

Hver verður andstæðingur Gukesh í næsta HM-einvígi?

eigum við ekki að segja bara Caruana?

Hvaða bók ertu að lesa þessa dagana?

Er að lesa bók um Kryja yoga.

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir EM landsliða nú?

Fer í ræktina hleyp og sauna og Kaldi potturinn skoða byrjanir.

Hvernig tengist kvikmyndin Tinder Swindler borginni Batumi?

Veit ekki

Markmið þín á mótinu?

Tefla vel!

Hverja telur þú líklegasta Evrópumeistara?

Erfitt að segja hver verður evrópumeistari giska á Pólland?

Áfram?

KR!

- Auglýsing -