Friðrik við upphaf Reykjavíkurskákmótsin 2023 þar sem hann samfagnaði nýjasta kolleganum úr stórmeistarastétt, Vigni Vatnari.

Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák – fer fram í ár sem endranær! Teflt verður í nýlegum glæsilegum höfuðstöðvum bankans, Reykjastræti 6. Mótið fer fram sunnudaginn 7. desember og hefst kl. 13:00 og stendur til u.þ.b. kl. 17:00

Flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar taka þátt. Tímamörkin eru 3+2 og tefldar eru þrettán umferðir. 

Meðal keppenda eru stórmeistararnir Vignir Vatnar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Bragi Þorfinnsson og Þröstur Þórhallsson og Lenka Ptácníková stórmeistari kvenna.

Skákáhugamenn eru hvattir til að mæta í bankann og fylgjast með sterkustu skákmönnum landsins að tafli. Fjórum skákum úr hverri umferð verður varpað upp á skjá.

Landsbankinn stendur nú að mótinu í 22. skipti ásamt Skáksambandi Íslands. SÍ er bankanum afar þakklátt. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri, setur mótið í dag.

Mótið er haldið til heiðurs Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara landsins.

 FYRRI SIGURVEGARAR 

  • 2024 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2023 – Vignir Vatnar Stefánsson
  • 2022 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2021 – Helgi Ólafsson
  • 2020 – Hjörvar Steinn Grétarsson
  • 2019 – Jón Viktor Gunnarsson
  • 2018 – Jóhann Hjartarson
  • 2017 – Hannes Hlífar Stefánsson
  • 2016 – Jóhann Hjartarson
  • 2015 – Þröstur Þórhallsson
  • 2014 – Héðinn Steingrímsson
  • 2013 – Helgi Ólafsson
  • 2012 – Bragi Þorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
  • 2011 – Henrik Danielsen
  • 2010 – Jón Viktor Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson
  • 2009 – Héðinn Steingrímsson
  • 2008 – Helgi Ólafsson
  • 2007 – Héðinn Steingrímsson
  • 2006 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2005 – Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
  • 2004 – Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson 
- Auglýsing -