Úrslit Síminn Invitational í netskák fóru fram á sunnudagskvöldið síðastliðið. Í úrslitum mættust stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og hans fyrsti skákkennari, alþjóðlegi meistarinn, Björn Þorfinnsson. Skemmst er frá því að segja að Vignir vann nokkuð auðveldan sigur og urðu lokatölur 6-1 Vigni í vil.
Mótið var í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar voru á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.
Skákskýringarnar voru í umsjón Björns Ívars og Ingvars Þórs.
Halldór Brynjar Halldórsson endaði efstur í Draumaliðsdeildinni. Staðan í Draumaliðsdeildinni.
Í úrslitum voru 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 200.000 kr – Vignir Vatnar Stefánsson
- 100.000 kr. – Björn Þorfinnsson
- 25.000 kr – Jón Kristinn Þorgeirsson
- 25.000 kr. – Ingvar Þór Jóhannesson
- Auglýsing -
















