Sigurganga íranska skákmannsins Amin Tabatabaei (2700) heldur áfram á Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu. Tabatabaei hefur nú unnið allar sex skákir sínar til þessa og í seinni umferð dagsins náði hann að leggja að velli franska stórmeistarann Maxime Lagarde (2614) í langri baráttuskák. Vignir Vatnar missti niður vænlegt tafl í jafntefli og minnka þar vonir hans á allra efstu sætum á mótinu. Vignir þarf nú sterkan endasprett.
Lesa má allt um fyrri umferð dagsins, þá fimmtu hér -> 5. umferð
Í viðureigninni á efsta borði hafði Tabatabaei svart gegn Lagarde eins og áður sagði. Sá franski reyndi að berjast og verjast lengi vel en Íraninn var alltaf með yfirhöndina og náði að klára dæmið.
View this post on Instagram
Jafntefli urðu úrslit á flestum öðrum efstu borðunum og þýddi það að sigrar hjá Maurizzi, Jianchao Zhou, David Brodsky og Timothe Razafindratsima lyftu þeim upp í skipt annað sæti með 5 vinninga og er nú sjö skákmenn í þeim hóp, heilum vinningi á eftir Tabatabaei. Vignir er enn efstur Íslendingana með 4,5 vinning en nú hefur Guðmundur Kjartansson náð honum að vinningum og hefur sama vinningafjölda. Fjöldi Íslendinga hefur svo 4 vinninga, þar á meðal Markús Orri Óskarsson sem vann gegn stigalægri andstæðingi í seinni umferð dagsins.
Skák Vignis var að mörgu leiti fín, hann hafði svart gegn efnilegum skákmanni og fékk meira og minna það sem hann þurfti úr byrjuninni. Vignir hafði þægilegra tafl og betri tíma og saumaði jafnt og þétt að andstæðingi sínum. Eitthvað eilítið vantaði upp á tæknilegu úrvinnsluna og missti Vignir skákina niður í jafntefli, svekkjandi úrslit.
Myndapakki úr 6. umferð (smellið á örina til hægri til að sjá næstu myndir!)
Helstu úrslit:

Staða efstu skákmanna:
.
Sjöunda umferð mótsins hefst á morgun, sunnudag kl. 15:00.
Helstu viðureignum sjöundu umferðar verður bætt í fréttina eftir að pörun liggur fyrir.
Skákskýringar verða á staðnum undir stjórn Helga Áss Grétarssonar og má gera ráð fyrir að þær hefjist um kl. 17:00 í Stemmu í Hörpu.
Chess-Results
Hægt er að nálgast skákir á:
Streymarar:
- Hannah Sayce
- Tamara Kadovic
- Matthew Perchard (rás og skýringar hjá Lulurobs)
- Simon Williams
- Keti Tsatsalashvili
Efni frá mótshöldurum:
- Heimasíða mótsins
- Instagram Skáksambandsins
- TikTok Skáksambandsins
- Twitter/X Reykjavik Open
- Facebook síða mótsins
Annað:

















