Dagur Ragnarsson heldur áfram góðu gengi sínu á opna Tælenska, alþjóðlegu móti í Bangkok. Dagur hefur fimm og hálfan vinninga að loknum átta umferðum og í grennd við efstu menn. Landsliðskonan og FIDE-meistari kvenna Hallgerður Þorsteinsdóttir tók hjásetu í umferð dagsins.
Dagur hafði hvítt gegn stórmeistara frá Úkraínu Vitaly Bernaditsky (2519). Dagur lék drottningarpeði sínu og kóngsindversk vörn tók fljótt stefnu í Benkö-bragð. Svartur fórnar peði fyrir virka stöðu og pressu á drottningarvæng. Framan af tafli virtist sú pressa ætla að verða óþægileg. Bernaditsky tók frumkvæðið og virtist vera að fá betra tafl.
Vörnin hélt hjá Degi í miðtaflinu og hann fékk sjálfur fína sénsa í flóknu endatafli en náði ekki að nýta sér það nægjanlega vel og þurfti að lokum að verja endatafl peði undir en var vandanum vaxinn og tryggði jafnteflið þar.
Traust jafntefli og Dagur hefur 5,5 vinninga eftir 8 umferðir og með aðeins eina tapskák.

Hallgerður hafði hvítt í sinni skák gegn James Rowan (1921) frá Kanada og varð að lúta í dúk.
Í lokaumferðinni á morgun hefur Dagur svart gegn alþjóðlegum meistara frá Indónesíu Arif Abdul Hafiz (2442). Hallgerður hefur svart gegn enn einum Indverjanum, Dhoundiyal Amit (1795)
- Heimasíða mótsins
- Skákir á lichess (24 efstu borð)
- Úrslit á chess-results
- Myndasíða mótsins
Um mótið:
241 skákmaður tekur þátt í A-flokki á Bangkok Open. Dagur er númer 45 í stigaröðinni en Hallgerður 127. Stigahæstur keppenda er „Lókurinn“ Loek van Wely en þekktastur keppenda og sá sem hefur oftast unnið mótið er önnur goðsögn, Nigel Short. Tefld er ein skák á dag, níu dagar.

















