Íslandsmót barnaskólasveita 4-7. bekkur fór fram þann 18.apríl í á sólríkum vordegi í Reykjavík. Mótið var eins og síðustu ár haldið í Rimaskóla og var mjög fjölmennt og voru 34 sveitir skráðar til leiks. Tefldar voru átta umferðir. Langur dagur þar sem reyndi mikið á þrek keppanda að halda haus.

Mikið var um sterkar sveitir en fyrirfram voru sveitir Rimaskóla og Langholtsskóla sigurstranglegastar. Mættust sveitirnar strax í annarri umferð. Rimaskóli hafði betur í þeirra innbyrðis viðureign og tók fljótt forystu í mótinu. Þegar leið á mótið hélt forysta Rimaskóla að minnka og eftir sex umferðir voru sveitirnar jafnar að vinningum. Fyrir lokaumferðina var sveit Langholtsskóla búin að taka forystu. Í loka umferðinni vann Langholtsskóli 4-0 gegn Landakotsskóla a-sveit sem skilaði þeim með 27½ vinning. Rimaskóli vann einnig sína viðureign og endaði með 25½.

Mikil keppni var einnig um þriðja sætið. Þó nokkrar sveitir voru með svipaðan vinningafjölda en að þessu sinni fékk ung sveit Melaskóla þriðja sætið eftir 3-1 sigur í lokaumferðinni og endaði með 20 vinninga hálfum vinningi á undan næstu sveitum.

🥇Langholtsskóli 27½

🥈Rimaskóli A-sveit 25½

🥉Melaskóli 20

Einnig voru veitt önnur verðlaun í mótinu. Veitt voru verðlaun fyrir þrjár efstu landsbyggðarsveitir og efstu b og c-sveitir.

Landsbyggðarsveitirnar voru að þessu sinni fimm talsins. Að þessu sinni var það Brekkuskóli frá Akureyri sem endaði efst með 19½ vinning rétt á eftir verðlaunasæti. Annað sætið hálfum vinning á eftir var Flóaskóli með 19 vinninga. Þriðja sætið með 17 vinninga var b-sveit Flúðaskóla sem endaði hálfum vinningi á undan a-sveitinni sinni.

Efsta b-sveitin eins og oft áður var B-sveit Rimaskóla með 17½ vinning. Efsta C-sveitin var einnig c-sveit Rimaskóla með 15 vinninga.

Langholtsskóli íslandsmeistari 2026
Sigursveit Langholtsskóla: Jakob Steinn Valdimarsson, Vilhelm Þór have Hermansen, Gunnar Þór Þórhallsson, Pétur Úlfar Ernisson
Rimaskóli A-sveit Íslandsmót barnaskólasveita 2026
Silfurlið Rimaskóla: Liðsstjóri Helgi Árnason, Tristan Fannar Jónsson, Alexander Kári Haukdal Bergsson, Ómar Jón Kjartansson
Melaskóli Íslandsmót barnaskólsveita
Bronslið Melaskóla: Rakshat Murali Krishna, Hörður A. Skúlason, Róbert Heiðar Skúlason, Theodór Nóel Schram
Brekkuskóli efsta landsbyggðasveitin
Efsta landsbyggðarsveitin Brekkuskóli: Anton, Hákon, Egill, Nökkvi Már
Flóaskóli
Annað sæti landsbyggðarsveit: Flóaskóli, Kristján Þorarinn Andrason, Birnir Þór Hlíðdal, Þorkell Ólafur Þórbergsson, Arnar Alex Reynisson
Þriðja sæti Landsbyggðarsveit: Flúðaskóli b-sveit Lauri Fannar Hjaltason, Hákon Orri Scheving Atlason, Fannar Kristinsson, Jakub Dawid Bucik
Rimaskóli B-sveit Efsta b-sveitin
Efsta b-sveitin: Rimaskóli b-sveit: Liðsstjóri Helgi Árnason, Jóhann Jakob Sigríðarson, Þóra Kristín Jónsdóttir, Erlendur Sigurðsson, Benedikt Hafsteinsson
c-sveit Rimaskóla 2026
Efsta c-sveitin C-sveit Rimaskóla: Sara Björg Sigurðardóttir, Lea Dagmar Ingadóttir, Hubert A. Poslednik, Margrét EInarsdóttir, Alexander Leó Óskarsson
Lokastaðan eftir 8.umferðir

Hægt er að sjá lokastöðu mótsins á úrslitasíðunni chess-results:

Myndir frá mótinu má sjá á flickr síðu Skáksambands Íslands. Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7. bekkur) 2026

 

 

- Auglýsing -