Jólaskákmót Vinaskákfélagsins, Haukur Halldórsson Memorial verður haldið mánudaginn 10. desember og verður það tileinkað kærum félaga okkar honum Hauk Halldórssyni sem lést um aldur fram þann 7 júlí sl., aðeins 51 árs að aldri.
Margar skákirnar tefldum við saman í Vin Batasetur, Hverfisgötu 47. Blessuð sé minning hans.
Skákmótið hefst stundvíslega kl. 13:00 í Vin.
Tefldar verða 6 umferðir með 7 mín., á skák, en skákstjórar verða Róbert Lagerman og Hörður Jónasson. Skipuleggjari er Hrafn Jökulsson. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.
Góð verðlaun verða í boði.
Þið getið skráð ykkur á mótið með því að klikka á mótaáætlunina á skak.is síðunni og farið í skráningarformið til að skrá ykkur.
Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.
Allir velkomnir!!

















