Maímót Hauka

    0
    7
    Hvenær:
    14. maí, 2026 allan daginn
    2026-05-14T00:00:00+00:00
    2026-05-15T00:00:00+00:00
    Hvar:
    Ásvellir
    Tengiliður:
    Auðbergur Magnússon
    Maímót Hauka @ Ásvellir

    Skákdeild Hauka heldur mánaðarleg skákmót.

    Fimmta mótið verður haldið fimmtudaginn 14. maí – uppstigningardag, að Ásvöllum 1, veislusalnum.

    Hér er skráningarform til að flýta fyrir skráningu! (en líka hægt að skrá sig á staðnum!)

    Úrslit janúarmóts  Ágúst Sindri Karlsson vann

    Úrslit febrúarmóts Gauti Páll Jónsson vann

    Úrslit marsmóts Þorvarður Fannar Ólafsson vann

    Úrslit aprílmóts Gauti Páll Jónsson vann

    Myndir frá mótunum

    Mótið hefst klukkan 19:45 og stendur til 21:45. Skráning fer fram á staðnum og byrjað er að taka við skráningum klukkan 19:30. Einnig má skrá sig fyrirfram í forminu hér að ofan.

    Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 4+3. Fjórar mínútur á mann að viðbættum þremur sekúndum á hvern leik. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

    Mótið er öllum opið. Við hvetjum Hafnfirðinga sérstaklega til þátttöku!

    Þátttökugjöld:

    Félagsmenn Hauka 18 ára og eldri: 500kr.

    Félagsmenn Hauka 17 ára og yngri: Ókeypis

    Utanfélagsmenn 18 ára og eldri: 1000kr.

    Utanfélagsmenn 17 ára og yngri: 500kr.

    Reikningsnúmer: 0544 05 412544

    Kennitala: 631101 2830

    - Auglýsing -