Skáksamband Íslands skilaði hagnaði upp á 1,8 milljónir króna árið 2025. Þetta er aukning frá árinu á undan þegar tap nam rúmlega 350 þúsund krónum að teknu tilliti til afkomu Skákskólans 2024. Sjálft Skáksambandið var með 2 milljóna hagnað árið 2024 en Skákskólinn með tap upp á 2,4 milljónir. Skáksambandið og Skákskólinn voru í fyrsta skipti nú með sameiginlegan ársreikning.

Eigið fé Skáksambandsins stendur nú í tæpum 79 milljónum króna og heildareignir námu 90,5 milljónum króna í lok árs.

Niðurstaða ársreiknings er endanleg en frekari skýringar og sundurliðanir verða birtar fyrir aðalfund sambandsins sem fram fer 30. maí nk.

Nánar um aðalfundinn 

Ársreikningur SÍ 2025

Ársreikningar og árskýrslur SÍ

- Auglýsing -