Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson og kandídatameistarinn tilvonandi Gauti Páll Jónsson sitja að tafli á Limburg Open í Hollandi. Upphaflega ætluðu þeir félagar að skella sér á ráðstefnu um hvatvísisstjórnun og ADHD en skelltu sér í staðinn á skákmótið, það er svo gaman að þessu!

Limburg Open er flokkaskipt mót og tefla þeir félagar í A-flokki. Einnig eru B, C, D og Veteran flokkur auk þess sem Max Warmerdam er að tefla einvígi við skákgoðsögnina Vasyl Ivanchuk.

Í A-flokki tefla 138 skákmenn frá 29 þjóðlöndum og fimm stórmeistarar, þeirra stigahæstur Loek Van Wely en skammt undan er önnur skákgögn, sjálfur Mikhail Gurevich. Tefldar eru sjö umferðir, þrír tvöfaldir dagar.

Björn hefur farið nokkuð vel af stað og hefur að loknum fimm umferðum halað inn 4 vinningum, öllum gegn stigalægri andstæðingum. Gauta Páli hefur ekki gengið jafn vel, hefur 1,5 vinning og á enn eftir að vinna skák.

Björn kom beint úr flugi meira og minna í fyrstu umferð (föstudaginn) og miðað við það náði hann ansi góðri skák strax. Björn fórnaði manni fyrir sterk peð á drottningarvæng og gott biskupapar og tefldi gríðarlega góða skák, 98% skor fékk hann á lichess!

Eina skák Gauta beint hingað til var í sömu umferð. Þar mætti Gauti víetnömskum FIDE-meistara og virtist eiga að ná jafntefli en náði ekki að halda hróksendataflinu.

Í 2. umferð sem fram fór á tvöföldum degi í gær mætti Björn aftur belgískum 2150+ skákmanni. Björn fékk skólabókar endatafl með biskupaparið og peð á báðum vængjum og hefði líklega á flestum dögum náð svíðingnum í gegn. Sá belgíski gaf þó eitt gott færi á sér…51.Bf8?? var arfaslakur

Hér hefði 52…Bb6+ tryggt punktinn en Bjössi notaði ekki tímann (spurning með hvatvísisnámskeiðið) og missti af tækifærinu.

Í 3. umferð, seinni umferð gærdagsins, lagði Björn tyrkneskan skákmann með rétt undir 2200 elóstigum auðveldlega að velli með hvítu mönnunum. Aftur 98% accuracy hjá Birni í „Píramídanum“ og eiginlega aðdáunarvert hvað andstæðingar hans í 1. og 3. umferð bognuðu auðveldlega niður, þó þetta stigaháir.

Í fyrri umferð dagsins í dag fékk Björn aftur tyrkneskan andstæðing, nú FIDE-meistara yfir 2200 elóstigum. Björn lifði af smá harðlífi í byrjuinni og náði að trikka mann af andstæðingi sínum. Eftir smá endataflsdans virtist Björn vera að innbyrða vinninginn…en þá kom hvatvísi Húnninn í heimsókn.

51…Kd7?? kastaði öllu erfiðinu út í ballarhafið og eftir 52.c5 er jafnteflið óumflýjanlegt. Í stað þess hefði 51…Rb8 og svo riddarinn á a6 unnið taflið þar sem þá og aðeins þá getur svarti kóngurinn farið og náð í b-peðið.

Hafi Björn misst af færum fyrr á mótinu má segja að hann hafi náð í þau aftur í seinni skák dagsins. Eftir mikið svekkelsi og langa skák fyrr um daginn sýndi Björn mikinn karakter og styrk og náði að þvinga fram vinning í löngu endatafli þar sem jafnteflið var lengi vel í seilingarfjarlægð fyrir svartan. Alvöru seiglusigur!

Á morgun er lokakeppnisdagur og í fyrri umferðinni (þeirri sjöttu) mætir Björn stórmeistaranum Thomas Beerdsen (2518) en Gauti mætir japönskum andstæðingi.

- Auglýsing -