Green Diamond Invitational 2026 fer fram laugardaginn 20. júní. Um er að ræða gríðarlega öflugt boðsmót þar sem ellefu sterkir skákmenn tefla fyrst einfalda umferð allir við alla og síðan hið sívinsæla „Final Four“ fyrirkomulag um sigurinn í mótinu. Mótið er í raun það sterkt að níu stórmeistarar mæta til leiks og sjálfur Íslandsmeistarinn í skák er stigalægstur keppenda!

Mótið hefst kl. 12:00 á laugardeginum og verður sýnt verður frá mótinu í beinni útsendingu á Vísi! Teflt verður með tímamörkunum 4 mínútur á skákina auk 2 sekúndna viðbótar á hvern leik.

Keppendur (FIDE-stig)

GM Vignir Vatnar Stefánsson – 2534
GM Hjörvar Steinn Grétarsson – 2494
GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Helgi Áss Grétarsson – 2420
GM Hannes Hlífar Stefánsson – 2419
GM Jón L. Árnason – 2404
GM Þröstur Þórhallsson – 2392
GM Bragi Þorfinnsson – 2370
IM Björn Þorfinnsson – 2356
IM Hilmir Freyr Heimisson – 2310

Keppendalistinn er, eins og sjá má, hlaðinn flestum af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar. Margir bíða vafalaust spenntir eftir að sjá Hjörvar Stein Grétarsson aftur við skákborðið en hann hefur „lagt peðin í vasann“ undanfarin ár.

Fyrirkomulag

Í fyrri hluta mótsins verður tefld einföld umferð allir við alla, alls 11 umferðir. Þar sem keppendur eru ellefu situr einn keppandi hjá í hverri umferð. Hálfleikspása verður tekin eftir 6. umferð.

Að riðlakeppni lokinni komast fjórir efstu keppendurnir áfram í Final Four. Þar verða tefld undanúrslit, þar sem efsti maður riðilsins velur sér andstæðing af hinum þremur! Hvert einvígi verður þrjár skákir með sömu tímamörkum, 4+2. Sá keppandi sem endaði ofar í riðlinum fær hvítt í fyrstu tveimur skákunum.

Verði jafnt eftir þrjár skákir ræðst einvígið í Armageddon. Sigurvegarar undanúrslitanna mætast í úrslitum en taparar tefla um þriðja sætið.

Tímaplan keppenda

11:30 – Húsið opnar
12:00 – Mæting, kynning og 1. umferð
12:00–13:35 – Umferðir 1–6
13:35 – Hálfleikspása
13:50–15:10 – Umferðir 7–11
15:10 – Pása
15:25 – Undanúrslit Final Four
16:20 – Pása
16:35 – Úrslit og bronsleikur
17:30 – Verðlaunaafhending

Áætlað er að hver umferð taki um 15 mínútur, að meðtöldum tíma fyrir uppsetningu og borðaskipti. Léttar veitingar verða í boði fyrir keppendur á mótsstað allan mótsdaginn.

Verðlaun

  1. sæti – 250.000 kr.
  2. sæti – 150.000 kr.
  3. sæti – 100.000 kr.
- Auglýsing -