Fjórða umferð var tefld í dag á EM öldunga á Acqui Terme á Ítalíu. Í 50+ flokknum eru allir íslensku keppendurnir í skiptu efsta sæti með 3,5 vinning en átta skákmenn skipta efsta sætinu og stefnir í spennandi mót. Margeir hefur einnig 3,5 vinning í 65+ flokknum en þrír skákmenn hafa fullt hús enn þar.
Flokkur (50+)
Þröstur og Henrik höfðu 3 af 3 fyrir umferðina en Jóhann 2,5 vinning.
Þröstur mætti Cristof Sielecki, alþjóðlegum meistara sem getið hefur sér gott orð sem bæði YouTube-streymari og Chessable-höfundur í gegnum tíðina. Þröstur fékk lítið gegn Caro-kann vörn Sielecki og bauð jafntefli með örlítið verri stöðu sem var samþykkt.
Henrik gerði einnig nokkuð stutt jafntefli gegn Danny Gormally, enskum stórmeistara. Gormally var með eilítið þægilegra tafl þegar samið var en svarta staðan traust.
Jóhann stýrði hvítu mönnunum gegn IM Rahal Vives. Jóhann bjó til sannkallaða sinfóníu á hvítu reitunum og vann stórglæsilegan stöðulegan sigur. Skák sem vert er að skoða vel!
Allir íslensku keppendurnir hafa nú 3,5 vinning og eru jafnir í efsta sæti eins og áður sagði.
5. umferð fer fram á morgun. Jóhann hefur svart gegn Sielecki, Henrik hefur hvítt gegn Arnd Lauber og Þröstur hefur svart gegn Fred Berend.
Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2467), Henrik Danielsen (2466) og Þröstur Þórhallsson (2397) taka þátt í þessum flokki. Þeir eru nr. 2-4 í stigaröð keppenda en 88 skákmenn taka þátt. Stigahæstur í flokknum er franski stórmeistarinn Jean-Marc Degrave (2494).
Flokkur (65+)
Margeir var með 2,5 af 3 fyrir umferðina og mætti úkraínskum skákmanni Leonid Gavrish (1999) og hafði svart. Margeir var þolinmóður og líkt og Jóhann dansaði mikið um á hvítu reitunum og sýndi styrkleikamuninn á milli skákmannana við borðið.
Margeir hefur 3,5 vinning og er í skiptu 4. sæti á eftir þremur sem hafa fullt hús. Margeir mætir einum þeirra á morgun Joan Pomes Marcet, spænskum IM og hefur Margeir hvítu mennina.
Margeir Pétursson (2393) tekur þátt einn Íslendinga í þessum flokki. Hann er nr. 4 í stigaröð keppenda af 125 þátttakendum. Stigahæstir eru Zurab Sturua og Ljubomir Ftacnik.



















