Íslandsmeistari kvenna Lenka Ptacnikova (2106) tefldi þriðju umferð á Teplice Open í Tékklandi í dag. Lenka mætti skákmanni frá Sameinuðu arabísku-furstadæmunum Sultan Zayed (1934) og lagði hann að velli og náði í sinn fyrsta sigur.

Í fjórðu umferðinni á morgun mætir Lenka kandídatameistaranum Michal Hlozek (2060) frá Tékklandi.

- Auglýsing -