Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gerði í dag jafntefli í fjórðu umferð á opnu móti á Spáni: VII Open Internacional València Cuna del Ajedrez. Andstæðingur Hannesar í dag er stigahæsti keppandi mótsins Fyrir umferðina var Hannes efstur ásamt tíu öðrum fyrir umferðina en er nú hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.
Hannes hafði hvítt gegn pólverjanum Lukasz Licznerski sem er stigahæstur keppenda og í stuttu máli var engum bátum ruggað í þessari skák!
Hannes hefur 3 vinninga af 4 mögulegum og er hálfum vinningi á eftir efstu mönnum.
Alls taka 141 skákmaður þátt á mótinu og þar af fjöldi stórmeistara. Hannes er númer 13 í stigaröð keppenda. Tefld er ein umferð á daga, níu daga mót!
- Auglýsing -


















