Stigahæsti skákmaður Íslands og stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson hóf í gær leik á opnu móti í Kanada. Tvær umferðir fóru fram á fyrsta keppnisdegi. Vignir vann sigur í fyrstu umferð gegn stigalægri andstæðing en varð að gera sér jafntefli að góðu með svörtu gegn alþjóðlegum meistara.

Í fyrstu umferð mætti Vignir andstæðingi með tæp 2000 elóstig og hafði hvítt. Upp kom Catalan-byrjun og Vignir var kannski ekki alveg að finna bestu leikina en það kom ekki að sök vegna styrkleikamunar keppenda í þessari skák. Vignir vann af því að hann er betri í skák, svo einfalt var það!

Í 2. umferð mætti Vignir alþjóðlega meistaranum David Cummings. Sá er ákveðinn refur, hefur mætt í ótal skipti á Reykjavíkurskákmótið og meðal annars gengið vel á hinu vinsæla Pub Quiz Reykjavíkurskákmótsins!

Vignir þurfti að rugga einhverjum bátum til að reyna að fá vinningsmöguleika með svörtu en David vildi ekkert leyfa. Vignir ákvað að sprengja sig ekki og sætti sig við jafntefli þó það sé vissulega svekkjandi!

Vignir hefur 1,5 vinning eftir fyrstu tvær umferðirnar, vissulega undir pari en ekkert til að hafa áhyggjur af og nóg eftir af mótinu!

Á morgun er einnig tvöföld umferð en svo hægist á mótinu og ein umferð á dag er tefld!

- Auglýsing -