Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson, stigahæsti skákmaður Íslands, vann sigur í 5. umferð á opna kanadíska meistaramótinu í skák. Vignir lagði kanadískan FIDE-meistara að velli og hefur 4 vinninga að loknum fimm umferðum.
Vignir hafði hvítt gegn kanadísk FIDE-meistaranum Christian Steven (2201). Vignir tefldi traust í byrjuninni og sá kanadíski tók mikla sénsa með léttu menn sína og lenti í vandræðum með þá. Vignir vann mann, þurfti vissulega að reikna sig aðeins út úr aðstæðunum en var vandanum vaxinn og aldrei í vandræðum.
Sigurinn þýðir að Vignir hefur 4 vinninga að loknum fimm umferðum og er nálægt efstu mönnum. Ein skák er tefld á dag það sem eftir lifir móts!
- Auglýsing -















